|
|||
![]() |
|||
2017-11-20 10:00:00 CET 2017-11-20 10:01:06 CET REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarÍslandsbanki hf.: Útboð á sértryggðum skuldabréfum 21. nóvemberÍslandsbanki hf. verður með útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 21. nóvember 2017. Boðnir verða út verðtryggðu flokkarnir ISLA CBI 24 og ISLA CBI 30. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 28. nóvember. Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar í síma 440 4490 eða með tölvupósti á vbm@isb.is. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengsl - Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [] |
|||
|