|
|||
![]() |
|||
2016-09-30 19:33:27 CEST 2016-09-30 19:33:27 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. : Tilkynning um kaup Landsbankans hf. á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun - kaup á fyrsta endurkaupatímabiliÞann 15. september 2016 birti Landsbankinn hf. tilkynningu um að bankinn byðist til að kaupa hluti af hluthöfum samkvæmt endurkaupaáætlun á þremur nánar tilgreindum endurkaupatímabilum. Fyrsta endurkaupatímabilið var frá 19. september 2016 til og með 30. september 2016. Á fyrsta endurkaupatímabili keypti Landsbankinn samtals 119.762.260 eigin hluti á genginu 10,3966 að kaupvirði 1.245.120.325 kr. Hvorki bankastjóri Landsbankans né framkvæmdastjórar hjá bankanum seldu hluti í bankanum á fyrsta endurkaupatímabili. Landsbankinn átti 218.309.618 eigin hluti fyrir viðskiptin á fyrsta endurkaupatímabili og á að því loknu 338.071.878 eigin hluti, eða sem nemur um 1,4% af útgefnum hlutum í félaginu. Landsbankinn hefur keypt samtals 119.762.260 eigin hluti samkvæmt endurkaupaáætluninni eða sem nemur um 0,5% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur kaupverð þeirra 1.245.120.325 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki samtals 480 milljónum hluta eða sem nemur 2% af útgefnu hlutafé. Landsbankinn býðst til að kaupa hluti af hluthöfum á öðru endurkaupatímabili, sem stendur frá 31. október 2016 til og með 9. desember 2016, og á þriðja endurkaupatímabili, sem stendur frá 13. febrúar 2017 til og með 24. febrúar 2017. Ef framangreindu hámarki verður náð fyrir þau tímamörk fellur endurkaupaáætlunin úr gildi. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995. Nánari upplýsingar veita: Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, ir@landsbankinn.is og í síma 410 7310 [] |
|||
|