2013-09-18 18:47:40 CEST

2013-09-18 18:48:41 CEST


REGULATED INFORMATION

This message has been corrected. Click here to view the corrected message

English Islandic
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Mánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs ágúst 2013


Í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs fyrir ágúst 2013 kemur fram að fullnustueignir
sjóðsins eru nú 2.575. Tæpur helmingur þeirra eigna er þegar í útleigu eða um
1.195. Þær 1.300 íbúðir sem ekki eru í útleigu eru í mjög misjöfnu ástandi, frá
því að vera vart fokheldar til þess að þarfnast nokkurra lagfæringa. 

Allar leiguhæfar íbúðir á markað í nóvember

Íbúðalánasjóður setur að hámarki 1,5 milljónir kr. í viðgerðir og frágang á
íbúð til þess að gera hana leiguhæfa. Um 130 eignir í eigu sjóðsins falla í
þann flokk. Viðgerðum og standsetningu er hraðað eftir megni og mun taka um
átta vikur að gera þær allar tilbúnar fyrir leigumarkað. Í nóvember er því
áætlað að allar leiguhæfar íbúðir Íbúðalánasjóðs verði komnar í leigu eða
boðnar á leigumarkaði. 

Eignir í söluferli

Kosti standsetning fyrir leigu meira en 1,5 milljónir kr. fer viðkomandi eign í
söluferli. Slíkar eignir eru yfir þúsund talsins og eignasvið Íbúðalánasjóðs
hefur því ekki haft undan. Íbúðalánasjóður hefur því ákveðið að semja við
utanaðkomandi verktaka til þess að hraða megi undirbúningi og skráningu eigna,
þrifum og gerð sölulýsinga. 

Stefnt er að því að allar eignir sjóðsins verði tilbúnar í sölu fyrir áramót.
Markaðsaðstæður á mismunandi stöðum geta þó að sjálfsögðu haft áhrif á það
hversu hratt eignir eru settar í sölu.