2012-05-11 13:45:00 CEST

2012-05-11 13:45:03 CEST


REGULATED INFORMATION

This message has been corrected. Click here to view the corrected message

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 12 0815 OG RIKV 12 1115


Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 12 0815  og RIKV 12 1115 með
tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

                    Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 12 0815:

Alls bárust 12 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 12.150 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 11.000 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,200 (flatir
vextir 3,16%). 

RIKV 12 1115:

Alls bárust 12 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 10.950 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 9.800 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,440 (flatir
vextir 3,10%).