|
|||
2010-06-25 13:47:30 CEST 2010-06-25 13:48:28 CEST BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð verðtryggðra ríkisbréfa RIKS 21 0414Útboð á verðtryggðum ríkisbréfum í flokki RIKS 21 0414 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að bjóðendum buðust öll samþykkt tilboð á sama verði. Hæsta samþykkta ávöxtunarkrafa ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: Alls bárust 15 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.048 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 1.548 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 103,45 (3,41% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 29. júní. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 30. júní 2010. |
|||
|