2008-07-01 19:21:37 CEST

2008-07-01 19:22:41 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
SPRON Verðbréf hf. - Fyrirtækjafréttir

- Stjórnir Kaupþings og SPRON samþykkja samrunaáætlun


Stjórnir Kaupþings banka hf. (,,Kaupþing”) og Sparisjóðs Reykjavíkur og
nágrennis hf. (,,SPRON”) hafa samþykkt samrunaáætlun um að Kaupþing yfirtaki
eignir og skuldir SPRON með samruna félaganna. Samruninn hefur óveruleg áhrif á
heildarstærð Kaupþings á samstæðugrundvelli. 
Við samrunann fá hluthafar í SPRON sem endurgjald sem svarar til markaðsvirðis
SPRON við lok viðskiptadags þann 30. júní 2008 að viðbættu 15% álagi. Þetta
leiðir til þess að greiddar eru sem nemur 3,83 krónur fyrir hvern hlut í SPRON.
Endurgjaldið verður samsett með þeim hætti að 60% þess verða í formi hluta í
Exista hf. og 40% í formi hluta í Kaupþingi. 

Að mati stjórna Kaupþings og SPRON hefur samruninn jákvæð áhrif á starfsemi
félaganna á Íslandi. Samruninn er til þess fallinn að bæta þjónustu, auka
arðsemi í rekstri og virði fyrir hluthafa.  Órói á fjármálamörkuðum undanfarin
misseri hefur gert það að verkum að auka þarf áherslu á hagræðingu og hagkvæmni
í rekstri fjármálafyrirtækja.  Með sameiningu Kaupþings og SPRON er verið að
bregðast við breyttu rekstrarumhverfi og styrkja starfsemi félaganna á
íslenskum fjármálamarkaði.  Við sameininguna verður lögð áhersla á að viðhalda
sérstöðu þeirra og markaðsstöðu. Útibú beggja verða áfram rekin undir eigin 
merkjum. 


Skilyrði samrunans, hluthafafundur í SPRON og tímasetning samrunans

Samruninn er háður samþykki hluthafafundar SPRON og Fjármálaeftirlitsins. Þá er
samruninn einnig háður því að samkeppnisyfirvöld ógildi hann ekki eða setji
honum skilyrði sem stjórnir félaganna telja óviðunandi eða leiði til þess að
óhjákvæmilegt sé að leggja ákvörðun um samrunann að nýju fyrir hluthafafund í
SPRON. Samþykkis lánveitenda vegna samrunans hefur þegar verið aflað. Áætlað er
að hluthafafundur í SPRON verði haldinn í byrjun ágúst. Fyrir þann fund verður
lagt álit utanaðkomandi fjármálafyrirtækis á því endurgjaldi sem kemur fyrir
hlutafé í SPRON við samrunann. 

Sameinað félag mun ekki taka við rekstri, eignum og skuldum, svo og réttindum
og skyldum SPRON fyrr en öll skilyrði samrunans hafa verið uppfyllt. 

Endurgjald til hluthafa SPRON

Við samrunann fá hluthafar í SPRON 0,002007864 hluti í Kaupþingi og 0,305585106
hluti í Exista sem endurgjald fyrir hvern hlut að nafnverði ein króna í SPRON.
Ekki verður greitt fyrir eigin hluti SPRON. Hluthöfum SPRON mun standa til boða
að skipta umræddum hlutum innbyrðis fyrir milligöngu Kaupþings án þóknunar í
tvær vikur eftir uppgjör kaupverðsins, á markaðsverði á þeim tíma. Verðlagning
svarar til skráðs lokagengis á hlutum í  Kaupþingi og Exista þann 30. júní
2008, eða 763 krónur fyrir hvernig hlut í Kaupþingi og 7,52 krónur, fyrir hvern
hlut í Exista. Endurgjald til hluthafa SPRON jafngildir því að 3,83 krónur
verða greiddar fyrir hvern hlut í SPRON og verður það greitt hluthöfum SPRON
eftir  að skilyrði samrunans hafa verið uppfyllt. 

Kaupþing hefur gert samning um kaup á 832.737.199 hlutum í Exista, annars vegar
af SPRON (340.965.708 hlutum) og hins vegar af Kistu-fjárfestingarfélagi
(491.771.491 hlut), sem notaðir verða sem endurgjald í samrunanum og eru kaupin
háð sömu skilyrðum og samruninn sjálfur. Verð hlutanna í viðskiptunum er miðað
við sama gengi og hér að ofan greinir, skráð lokagengi á hlutum í Exista þann
30. júní 2008, eða 7,52 krónur fyrir hvern hlut. 

Sameinað félag

Engin breyting verður á samþykktum Kaupþings við samrunann né skráningu þess á
OMX Nordic Exchange á Íslandi og í Stokkhólmi. Ekki verður gefið út nýtt
hlutafé í Kaupþingi í tengslum við samrunann. Dótturfélög SPRON verða
dótturfélög sameinaðs félags. 

Upplýsingar um félögin miðað við 31. mars 2008

Kaupþing	SPRON
Eigið fé	             416,9 ma.kr.	17,8 ma.kr.
Heildareignir	  6.368,4 ma.kr.	254,7 ma.kr.
Fjöldi stöðugilda	        3.324	295

Helstu dagsetningar

•	Samrunaáætlun samþykkt af stjórnum félaganna 1. júlí 2008.
•	Áætlað er að hluthafafundur í SPRON verði haldinn í byrjun ágúst.
•	Sameinað félag mun taka við rekstri, eignum og skuldum, svo og réttindum og
skyldum SPRON, þegar öll skilyrði samrunans hafa verið uppfyllt. 
Nánari upplýsingar veita;

Ingólfur Helgason, forstjóri Kaupþings á Íslandi, í síma 444-6121
Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON í síma 550-1200
Benedikt Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Kaupþings, í síma 444-6775 eða
ir@kaupthing.com 
Jóna Ann Pétursdóttir, forstöðumaður almannatengsla SPRON, í síma 840-8225, eða
ir@spron.is 

Um Kaupþing
Kaupþing banki hf. er norður evrópskur banki sem veitir alhliða viðskipta- og
fjárfestingarbankaþjónustu til einstaklinga, fyrirtækja og fagfjárfesta.
Kaupþing er með starfsemi í fjórtán löndum, þar með talið á öllum
Norðurlöndunum, Lúxemborg, Belgíu, Bretlandi, Mön, Sviss, Þýskalandi, Dubai,
Qatar og í Bandaríkjunum. Bankinn rekur einnig viðskiptabanka á Íslandi með 34
útibú á landsvísu en höfuðstöðvar bankans eru í Reykjavík. 

Um SPRON
SPRON er alhliða fjármálafyrirtæki sem veitir viðskipta- og
fjárfestingarbankaþjónustu til einstaklinga, fyrirtækja og fagfjárfesta á
höfuðborgarsvæðinu. Helstu dótturfélög SPRON eru SPRON Verðbréf, SPRON
Factoring, Netbankinn og Frjálsi Fjárfestingarbankinn. SPRON rekur 7 útibú á
höfuðborgarsvæðinu.

samrunagögn.pdf