|
|||
![]() |
|||
2015-11-26 09:45:55 CET 2015-11-26 09:45:55 CET REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : Útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 1. desemberÍslandsbanki hf. verður með útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 1. desember 2015. Boðnir verða út óverðtryggður flokkur til 8 ára, ISLA CB 23 og 11 ára verðtryggður flokkur, ISLA CBI 26. Íslandsbanki hefur endurskoðað útgáfuáætlun sína úr nettó útgáfu að upphæð 11-13 ma. kr. í 15-20 ma. kr. Bankinn hefur gefið út sértryggð bréf fyrir 20,26 ma. kr. á árinu en nettó útgáfa ársins er 15,59 ma. kr. ef tekið er tillit til þeirra bréfa sem voru gefin út til að uppfylla nýja samninga um viðskiptavakt. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187/ 844 3187. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [HUG#1969540] |
|||
|