2013-08-23 18:03:19 CEST

2013-08-23 18:04:20 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Eyrir Invest hf. - Fyrirtækjafréttir

Eyrir Invest hf., tilkynning


Hinn 15. maí 2013 tilkynnti Eyrir Invest til Nasdaq OMX Iceland sölu eigna á
verðbréfamarkaði.  Tilkynningarskylda var á þeirri sölu.  Tilgangur sölunnar
var að styrkja fjárhagsstöðu og auka sveigjanleika í rekstri. Jafnframt var
tilkynnt að félagið hyggðist borga upp fjárskuldbindingar á gjalddaga á næstu
tveimur árum, m.a. hyggðist félagið greiða upp skuldabréfaflokkinn EYRI 11 1
samkvæmt skilmálum flokksins og í framhaldinu afskrá þann flokk af
verðbréfamarkaði. 

Eyrir Invest er með mikið fé bundið hjá Glitni og dótturfélagi þess,
Haf-funding.  Eyrir Invest hefur náð samkomulagi við Haf-funding um uppgreiðslu
láns og samhliða því losun á fjármunum.  Lánið hjá Haf-funding var upphaflega
tekið árið 2007 og er með lokagjalddaga í desember 2013. Lánið er í fullum
skilum og hefur meginhluti höfuðstóls þegar verið greiddur.  Þar sem um lán í
evrum að ræða þarf formlegt samþykki Seðlabanka Íslands fyrir uppgreiðslu fyrir
gjalddaga, en Seðlabanki Íslands veitir undanþágur frá ströngum fjármagnshöftum
sem gilda á Íslandi.  Þann 16. maí 2013 sendi Eyrir Invest erindi til
Seðlabanka með beiðni um undanþágu til uppgreiðslu umrædds láns í samræmi við
samkomulag við lánveitanda. Heimild hefur enn ekki fengist. 

Eyrir Invest hyggst eftir sem áður greiða upp flokkinn EYRI 11 1 í samræmi við
skilmála bréfanna og afskrá skuldabréfin úr kauphöll í kjölfarið. 

Reykjavík, 23. ágúst 2013.

Frekari upplýsingar;

 Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyris Invest.

Sími: 525-0200

www.eyrir.is