|
|||
![]() |
|||
2012-06-05 10:45:27 CEST 2012-06-05 10:46:29 CEST REGULATED INFORMATION Marel hf. - ÁrsreikningurMarel hf. – Veiting kaupréttaStjórn Marel hf. ákvað á fundi sínum 4. júní 2012 að veita framkvæmdastjórn félagsins og lykilstarfsmönnum kauprétti að allt að 11 milljónum hluta í félaginu. Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Er þetta í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á aðalfundi Marel þann 29. febrúar 2012, en áður hafði verið samþykkt á aðalfundi félagsins árið 2010 að heimila stjórn að gefa út allt að 45 milljónir nýrra hluta í tengslum við kaupréttarsamninga við starfsmenn. Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi: -- Veittur er kaupréttur að hlutabréfum á grunnverðinu EUR 0,967 á hlut [1] sem hækkar árlega um 3% (e. hurdle rate). Verðið skal leiðrétt fyrir arðgreiðslum sem kunna að verða greiddar frá útgáfudegi kaupréttanna. -- Kaupréttirnir verða virkir í þrennu lagi, fyrst verða 60% kaupréttanna virk í október/nóvember 2015, síðan 20% árið 2016 og loks 20% árið 2017. Starfsmenn geta frestað nýtingu á kaupréttum sínum til ársins 2018, þegar samningarnir renna út og falla þá virkir en ónýttir kaupréttir niður á sama tíma. -- Kaupréttur er aðeins gildur sé kaupréttarhafi í starfi hjá Marel (Marel hf. eða dótturfélaga að fullu í eigu Marel) á nýtingardegi. Engir söluréttir eru til staðar eða fjármögnun tengd kaupréttarsamningunum en starfsmenn geta óskað eftir viðskiptum án þess að að leggja fram fjármagn (e. cashless exercise) sé keypt og selt samtímis. Heildarfjöldi hluta sem Marel hf. hefur nú veitt starfsmönnum sínum kauprétt að eru 33,2 milljónir og er þá meðtalin þessi nýja útgáfa kaupréttarsamninga. Heildarkostnaður félagsins vegna samninganna næstu 5 árin er áætlaður um 1,4 milljónir evra og er þá byggt á reiknilíkani Black-Scholes. Nánari upplýsingar um kauprétti sem veittir eru framkvæmdastjórn og framkvæmdastjórum iðnaðarsetra og sölu- og þjónustu: Nafn Staða Nýr Fyrri og Eignarhluti í eigin nafni kauprétt ónýttur og /eða tengdra aðila ur kaupréttur -------------------------------------------------------------------------------- Theo Hoen Forstjóri 600,000 2,350,000 1,500,000 -------------------------------------------------------------------------------- Erik Kaman Fjármálast 450,000 1,850,000 1,675,000 jóri -------------------------------------------------------------------------------- Sigsteinn P. Aðstoðarfo 450,000 675,000 25,997 Gretarsson rstjóri -------------------------------------------------------------------------------- Anton de Framkvæmda 315,000 1,100,000 0 Weerd stjóri -------------------------------------------------------------------------------- Jon B. Framkvæmda 210,000 100,000 0 Gunnarsson stjóri -------------------------------------------------------------------------------- BertJan Framkvæmda 210,000 125,000 0 Hardenbol stjóri -------------------------------------------------------------------------------- David Wilson Framkvæmda 210,000 50,000 0 stjóri -------------------------------------------------------------------------------- Petur Framkvæmda 315,000 850,000 114,430 Gudjonsson stjóri -------------------------------------------------------------------------------- [1]Kaupréttargengið er ákvarðað út frá lokagengi hlutabréfa Marel hf. á NASDAQ OMX Iceland hf. þann 1. júní 2012, þ.e. ISK 156 á hlut, umreiknað með miðgengi Seðlabanka Íslands fyrir EUR/ISK: 161,35. |
|||
|