2016-09-15 16:42:58 CEST

2016-09-15 16:42:58 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Eimskipafélag Íslands hf. - Fyrirtækjafréttir

Eimskip gerir tilboð í smíði og rekstur á nýrri Vestmannaeyjaferju


Eimskip lagði í dag fram tilboð í B hluta útboðs Ríkiskaupa, í smíði og rekstur
á nýrri Vestmannaeyjaferju. Tilboðin gera ráð fyrir að Eimskip smíði nýja ferju
sem yrði afhent um mitt ár 2018 og myndi félagið sjá um rekstur og þjónustu
ferjunnar allt til ársins 2030. Heildartilboð Eimskip í að smíða nýja ferju og
sjá um rekstur hennar í 12 ár liggur á bilinu 8,1 – 9,4  milljarðar króna. 

Eimskip hefur unnið tilboðið með sínum færustu sérfræðingum og í samstarfi við
erlendar skipasmíðastöðvar. 

Eimskip leggur ekki fram tilboð í A hluta útboðsins sem snýr að því að smíða
nýtt skip og selja til ríkisins. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort ríkið
tekur tilboðum í A-hluta eða B-hluta. Ef A hluti verður fyrir valinu og ríkið
semur beint við skipasmíðastöð má búast við að reksturinn verði boðinn út
síðar. 

Samkvæmt skilmálum útboðsins hafa Ríkiskaup 18 vikur til að meta innsend tilboð
og því liggur ekki fyrir á þessari stundu hvort  tilboði Eimskips verði tekið.
Málið er nú í höndum ríkisins að meta tilboðin. 

Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips

„Eimskipafélagið hefur séð um rekstur á Herjólfi frá árinu 2006. Félagið hefur
mjög góða þekkingu á þessum rekstri og við teljum okkur vera vel til þess
fallin að smíða nýtt skip í samstarfi við erlendar skipasmíðastöðvar sem og að
sjá um rekstur ferjunnar til næstu ára. Smíði á nýrri ferju er ætlað að bæta
samgöngur á milli lands og Eyja og það væri því frábært tækifæri fyrir Eimskip
að halda þessu verkefni áfram.  Það er von mín að þessi nýja ferja auki
verulega tíðni ferða á milli lands og Eyja í gegnum Landeyjahöfn þar sem þetta
er þjóðvegurinn til Eyja.“ 

Um Eimskip

Eimskip var stofnað árið 1914 og er með hlutabréf sín skráð á Nasdaq Iceland.
Félagið rekur 57 starfsstöðvar í 19 löndum, er með 20 skip í rekstri og hefur á
að skipa um 1.580 starfsmönnum. Um helmingur tekna Eimskips kemur frá starfsemi
utan Íslands. Stefna félagsins er að veita framúrskarandi flutningaþjónustu á
Norður-Atlantshafi ásamt því að bjóða víðtæka og öfluga þjónustu í alþjóðlegri
frystiflutningsmiðlun.