|
|||
2014-02-07 09:27:39 CET 2014-02-07 09:28:40 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirFitch Ratings staðfestir BBB lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Íslands og segir horfurnar stöðugarAlþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur staðfest lánhæfisseinkunnir Ríkissjóðs Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt sem BBB og BBB+ í innlendri mynt. Einkunnir fyrir skuldabréf (e. senior unsecured bonds) í erlendri og innlendri mynt eru staðfestar sem BBB og BBB+. Horfur fyrir lánshæfismat á langtímaskuldbindingum eru stöðugar. Landseinkunnin (e. Country Ceiling) er staðfest sem BBB og jafnframt er staðfest lánshæfisþakið F3 fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt. Í viðhengi má nálgast fréttatilkynningu Fitch Ratings. |
|||
|