|
|||
![]() |
|||
2016-05-26 20:33:30 CEST 2016-05-26 20:33:30 CEST REGULATED INFORMATION Eimskipafélag Íslands hf. - ÁrsreikningurEIMSKIP: EBITDA jókst um 66,5% á fyrsta ársfjórðungi 2016Afkomuspá fyrir 2016 hækkuð í 49 til 53 milljónir evra -- Rekstrartekjur námu 113,3 milljónum evra, jukust um 0,6 milljónir evra frá Q1 2015 -- EBITDA nam 9,6 milljónum evra samanborið við 5,8 milljónir evra og jókst um 66,5% -- Hagnaður nam 1,8 milljónum evra samanborið við 1,5 milljónir evra og jókst um 21,1% -- Flutningsmagn í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst um 8,1% frá Q1 2015 -- Flutningsmagn í flutningsmiðlun jókst um 5,9% frá Q1 2015 -- Eiginfjárhlutfall var 59,9% og nettóskuldir námu 33,4 milljónum evra í lok mars -- Afkomuspá ársins 2016 hefur verið hækkuð í 49 til 53 milljónir evra GYLFI SIGFÚSSON FORSTJÓRI „Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, EBITDA, nam 9,6 milljónum evra á fyrsta ársfjórðungi 2016 og jókst um 66,5% samanborið við sama tímabil í fyrra. Rekstrartekjur fjórðungsins voru 113,3 milljónir evra og jukust um 0,5%, en lækkandi verð í alþjóðlegri flutningsmiðlun drógu úr tekjuvexti. Félagið hefur ráðist í aðgerðir á undanförnum mánuðum og hefur breytt siglingakerfinu til að mæta betur erfiðum aðstæðum yfir vetrarmánuðina. Vegna hagræðingarverkefna og aukins kostnaðaraðhalds dróst rekstrarkostnaður að frátöldum launakostnaði saman á fjórðungnum. Rekstrargjöld að meðtöldum launakostnaði lækkuðu um 3,0%, sem er góður árangur í ljósi mikilla kostnaðarhækkana vegna kjarasamninga á Íslandi. Hagnaður tímabilsins nam 1,8 milljónum evra og jókst um 21,1% samanborið við fyrsta ársfjórðung 2015, þrátt fyrir 3,7 milljóna evra neikvæðan viðsnúning á gengismun. Handbært fé frá rekstri nam 12,7 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 3,1 milljón evra á sama tímabili í fyrra og nam handbært fé 47,3 milljónum evra í lok mars. Þetta er besti fyrsti ársfjórðungur í rekstri félagsins frá árinu 2009, en fyrsti ársfjórðungur er sá fjórðungur sem að jafnaði skilar lægstri rekstrarafkomu hjá félaginu. Flutningsmagn í áætlunarsiglingum félagsins á Norður-Atlantshafi jókst um 8,1% frá fyrsta ársfjórðungi síðasta árs. Góður vöxtur var í flutningum tengdum Íslandi, Færeyjum og Noregi og sérstaklega góður í Noregi í samanburði við erfiðan fyrsta fjórðung í fyrra. Við munum hér eftir kynna í okkar uppgjörum breytingar á heildarflutningsmagni í flutningsmiðlun, bæði hvað varðar frystiflutningsmiðlun og almenna flutningsmiðlun, sem jókst um 5,9% frá sama tímabili í fyrra. Eimskip og grænlenska skipafélagið Royal Arctic Line hafa undirritað viljayfirlýsingu um að tengja Grænland við alþjóðlegt siglingakerfi Eimskips. Félögin ráðgera að fjárfesta í og reka þrjú um það bil 2.000 gámaeininga skip sem verða hönnuð og smíðuð fyrir sérstakar aðstæður á Norður-Atlantshafi og munu þau tengja flutningakerfi Grænlands og Íslands við Skandinavíu, Evrópu og Norður-Ameríku. Nýju skipin verða hagkvæmari og umhverfisvænni í rekstri. Þetta verður þýðingarmikið samstarf sem skapa mun kostnaðarhagræði, auka afkastagetu og er skref í átt til framtíðar í endurnýjunaráætlun skipa Eimskips. Áætlað er að það taki tvö til þrjú ár að hanna og smíða skipin. Eimskip heldur áfram að meta möguleg fjárfestingartækifæri til vaxtar. Félagið nýtir sér sterka fjárhagsstöðu sína nú þegar samþætting í greininni heldur áfram. Við erum komin langt í fyrirtækjakaupum erlendis og gerum ráð fyrir að þeim verði lokið á þriðja ársfjórðungi. Annar ársfjórðungur lofar góðu samanborið við síðasta ár. Afkomuspá fyrir árið 2016 hefur verið hækkuð og er nú á bilinu 49 til 53 milljónir evra í stað þess að vera á bilinu 46 til 50 milljónir evra eins og kynnt var í febrúar síðastliðnum. Áætluð afkoma tengd nýjum fjárfestingum í fyrirtækjum og innviðum og kostnaður því tengdur eru ekki talin með í afkomuspá ársins.“ FREKARI UPPLÝSINGAR -- Gylfi Sigfússon forstjóri, sími: 525 7202 -- Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, sími: 525 7202 -- Erna Eiríksdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími: 825 7220, netfang: investors@eimskip.is |
|||
|