2009-02-12 10:22:41 CET

2009-02-12 10:23:41 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Íbúðalánasjóður kannar stofnun nýs flokks íbúðabréfa


Stjórn Íbúðalánasjóðs samþykkti á fundi sínum þann 5. febrúar síðastliðinn að
hafin yrði könnun á stofnun nýs flokks íbúðabréfa með lengri líftíma en
núverandi útgáfa býður upp á. Slík útgáfa mundi falla vel að greiðsluflæði
sjóðsins en almenn útlán hans eru í dag til allt að 40 ára og lengjanleg til
allt að 70 ára að vissum skilyrðum uppfylltum. Þá eru leiguíbúðalán til allt að
50 ára og fer hlutfall þeirra af heildarútlánum sjóðsins hækkandi. 

Íbúðalánasjóður mun þó áfram styðjast við útgáfu núverandi flokka íbúðabréfa,
þ.e. HFF150914, HFF150224, HFF150434 og HFF150644. Þess bera að geta að eftir
15. september 2009 mun Íbúðalánasjóður ekki lengur eiga möguleika á að auka
frekar við útgáfu HFF150914 þar sem ekki er heimilt að gefa út verðtryggð
skuldabréf til skemmri tíma en 5 ára.