|
|||
![]() |
|||
2017-01-18 16:31:01 CET 2017-01-18 16:31:01 CET REGULATED INFORMATION This message has been corrected. Click here to view the corrected message Lánamál ríkisins - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarÚtboð óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 28 1115Föstudaginn 20. janúar kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins með tilboðsfyrirkomulagi. Í þessu útboði verða seld bréf í nýjum tólf ára flokki ríkisbréfa RIKB 28 1115. Flokkurinn ber 5,00% árlega nafnvexti með vaxtagjalddaga 15. nóvember ár hvert. Lokagjalddagi bréfsins er 15. nóvember 2028. Nánari lýsing á flokknum fylgir í viðhengi með þessari frétt og frekari upplýsingar er hægt að sjá á www.lanamal.is. Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu Lánamál ríkisins bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 24. janúar 2017. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 25. janúar 2017. SKIPTIÚTBOÐ Aðilar eiga þess kost í útboðinu að kaupa bréf í RIKB 28 1115 með sölu á RIKB 17 0206, sem fellur á gjalddaga 6. febrúar nk. Lánamál ríkisins kaupa RIKB 17 0206 á fyrirfram ákveðnu verði þ.e. hreina verðinu 99,990 (104,826066 með áföllum vöxtum m.v. 100 kr. nafnverðseiningu) m.v. uppgjör 25. janúar 2017. Til skýringar, jafngildir verðið 5,187% í ávöxtunarkröfu. Andvirði bréfanna ásamt áföllnum vöxtum kemur þá sem greiðsla fyrir kaupum á nýjum bréfum. Þeir sem vilja nota RIKB 17 0206 sem greiðslu í útboðinu þurfa að tilkynna Lánamálum ríkisins það eigi síðar en kl. 14:00 þriðjudaginn 24. janúar 2017. Fjárfestar sem eiga bréf í RIKB 17 0206 og hafa áhuga á að endurfjárfesta í RIKB 28 1115 eru sérstaklega hvattir til þess að taka þátt í þessu útboði með því að hafa samband við næsta banka. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9635. |
|||
|