|
|||
2013-10-11 18:01:00 CEST 2013-10-11 18:01:02 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirSkiptigengi í gjaldeyrisútboðiSamkvæmt tilkynningu Seðlabanka Íslands dags. þann 4.september sl. varðandi gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands sem haldið verður 15.október nk. kom fram í útboðsskilmálum að skiptigengi vegna kaupa bankans á erlendum gjaldeyri í tengslum við sölu ríkisverðbréfa í flokki RIKS 33 0321 yrði birt í lok dags 11.október. Ákveðið hefur verið að skiptigengi á fjölda eininga ríkisverðbréfa pr. evra skal byggjast á útboðsverðinu og föstu verði ríkisverðbréfsins, sem er 111,547832 kr. pr. eining af ríkisverðbréfinu með áföllnum vöxtum og verðbótum (e. dirty price) miðað við uppgjörsdag 18. Október 2013 (ávöxtunarkrafa 2,79%).1 Formúlan er eftirfarandi: Skiptigengi = útboðsverð/(verð ríkisverðbréfs/100). 1Hreint verð (e. clean price) er 103,1. |
|||
|