|
|||
![]() |
|||
2016-01-12 10:13:35 CET 2016-01-12 10:13:35 CET REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki og Kaupþing ljúka samningum um fjármögnunArion banki hf. hefur undirritað samninga við Kaupþing ehf. sem kveða á um útgáfu Arion banka á skuldabréfi að fjárhæð $747.481.000, eða um 97 milljarðar króna. Skuldabréfið er gefið út innan EMTN-fjármögnunarramma Arion banka og er til sjö ára, en er uppgreiðanlegt á vaxtagjalddögum fyrstu tvö árin. Skuldabréfið ber fljótandi LIBOR vexti að viðbættu 2,6% álagi fyrstu tvö árin og mun vaxtaálagið að þeim tíma liðnum taka mið af markaðskjörum. Skuldabréfið kemur til skuldajöfnunar á láni í erlendum myntum, sem Arion banki var áður með hjá Seðlabanka Íslands en er nú í eigu Kaupþings, og innlána Kaupþings hjá Arion banka í erlendum myntum. Útgáfa skuldabréfsins er liður í aðgerðum sem snúa að Kaupþingi og miða að afnámi fjármagnshafta og tilkynnt var um af Fjármála- og efnahagsráðuneytinu 8. júní 2015. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, s: 856 7108, haraldur.eidsson@arionbanki.is. |
|||
|