|
|||
![]() |
|||
2017-03-16 17:02:42 CET 2017-03-16 17:02:42 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLandsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem fjórir flokkar voru boðnir til sölu. Heildartilboð í útboðinu voru 21 talsins og námu samtals 3.660 m. kr. að nafnverði. Þrjú tilboð að fjárhæð 1.960 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 19 á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,27%-5,30%. Öllum tilboðum í flokkinn var tekið á 5,30% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 16.960 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Sex tilboð að fjárhæð 540 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 21 á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,33%-5,36%. Tilboðum að fjárhæð 200 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 5,33%. Heildarstærð flokksins verður 3.620 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Tvö tilboð að fjárhæð 140 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 22 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,15%-3,20%. Báðum tilboðum í flokkinn var tekið á 3,20% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 19.860 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Tíu tilboð að fjárhæð 1.020 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,98%-3,00%. Öllum tilboðum í flokkinn var tekið á 3,00% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 5.240 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 23. mars 2017. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. [] |
|||
|