2011-05-23 11:22:02 CEST

2011-05-23 11:23:02 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Áhrif eldgossins í Grímsvötnum á Icelandair Group


Vegna eldgossins í Grímsvötnum hefur allt flug um Keflavíkurflugvöll legið
niðri frá því kl. 9.00 í gærmorgun. Samkvæmt núverandi veður- og öskuspám er
gert ráð fyrir að flogið verði um Keflavíkurflugvöll í kvöld og samkvæmt áætlun
á morgun. Ef þessar spár ganga eftir og ef ekki verða frekari truflanir vegna
gossins þá má gera ráð fyrir tjón Icelandair Group verði ekki verulegt og að
afkomuspá ársins haldist óbreytt. 



Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími 665 8801

Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group sími
840 7010