|
|||
![]() |
|||
2015-12-21 15:37:13 CET 2015-12-21 15:37:13 CET REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirÚtgáfuáætlun Arion banka árið 2016Sértryggð skuldabréf -- Stefnt er að því að heildarútgáfa markflokka sértryggðra skuldabréfa verði á bilinu 20-33 milljarðar króna á árinu 2016 -- Markflokkar sértryggðra skuldabréfa eru verðtryggðu flokkarnir ARION CBI 21 og ARION CBI 29 og óverðtryggði skuldabréfaflokkurinn ARION CB 22 -- Stefnt er að því að lágmarksstærð markflokks sé 10 milljarðar króna áður en útgáfu er hætt, skipting útgáfu á milli markflokka ræðst af markaðsaðstæðum og fleiri þáttum. Til greina kemur að bæta við nýjum markflokkum skuldabréfa á árinu 2016 -- Útboð sértryggðra skuldabréfa verða í hverjum mánuði. Útboð fara að jafnaði fram fyrsta miðvikudag í mánuði og verður uppgjörsdagur viku síðar – sjá dagsetningar hér að neðan. -- Áhersla verður á seljanleika sértryggðra skuldabréfa, en Landsbankinn, Íslandsbanki og Kvika eru viðskiptavakar sértryggðra skuldabréfa. Viðskiptavakar munu daglega setja fram kaup- og sölutilboð í skuldabréfin. Lágmarksfjárhæð að nafnvirði í markflokka skuldabréfa skal vera 80 mkr. að nafnvirði en lágmarksfjárhæð tilboða í aðra flokka skal vera 20 mkr. Fyrir markflokka gildir að ef útistandandi nafnvirði er minna en 10 makr. skal fjárhæð tilboða vera 60 mkr. en 80 mkr. þegar stærð flokks hefur náð 10 makr. að nafnvirði Víxlar -- Arion banki mun halda áfram með mánaðarleg víxlaútboð. Víxlaútboð fara að jafnaði fram um miðjan mánuð og er uppgjörsdagur í kringum 20. dags hvers mánaðar. Heildarútgáfa víxla er óákveðin og ræðst af markaðsaðstæðum EMTN og önnur fjármögnun -- Stefnt er að reglulegri útgáfu erlendis af Euro Medium Term Note (EMTN) skuldaramma bankans. Bankinn stefnir að því að auka aðgengi að erlendum fjármálamörkuðum á komandi misserum. Útgáfur í erlendri mynt eru þó ávallt háðar markaðsaðstæðum hverju sinni -- Arion banki stefnir að því að auka fjölbreytni í fjármögnun. Bankinn mun skoða aðra fjármögnunarkosti og fjölga fjármögnunarleiðum sé það hagfellt fyrir bankann. Kemur því til greina að gefa út óveðtryggð skuldabréf, víkjandi skuldabréf eða sértryggð skuldabréf í erlendum myntum og/ eða íslenskum krónum sé eftirspurn eftir slíku hjá fjárfestum. Upphæðir og tímasetningar slíkrar fjármögnunar fer eftir markaðsaðstæðum og viðtökum fjárfesta almennt. Útboð sértryggðra skuldabréfa verða á eftirfarandi dagsetningum: 06. janúar 2016 03. febrúar 2016 02. mars 2016 06. apríl 2016 04. maí 2016 01. júní 2016 06. júlí 2016 10. ágúst 2016 07. september 2016 05. október 2016 02. nóvember 2016 07. desember 2016 Arion banki áskilur sér rétt til að breyta þessari áætlun, þ.m.t. fella niður, fjölga eða breyta útboðs-dögum, breyta áætlaðri útgáfufjárhæð og gera aðrar breytingar eins og þörf er á, án fyrirvara. |
|||
|