|
|||
2016-09-14 19:03:25 CEST 2016-09-14 19:03:25 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki lýkur víxlaútboðiArion banki hf. lauk í dag, miðvikudag, útboði á víxlum til tólf, sex og fimm mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 7.000 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 2.680 milljónir kr. Seldir voru víxlar til 5 mánaða að nafnverði 1.480 milljónir á 5,75% flötum vöxtum. Seldir voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 1.200 milljónir á 5,75% flötum vöxtum. Öllum tilboðum í 12 mánaða víxla var hafnað að þessu sinni. Stefnt er á að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi í næstu viku. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|