|
|||
2011-02-08 12:30:00 CET 2011-02-08 12:30:02 CET REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - FyrirtækjafréttirBjarni Bjarnason ráðinn forstjóri Orkuveitu ReykjavíkurStjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) hefur ákveðið að ráða Bjarna Bjarnason jarðfræðing og verkfræðing forstjóra fyrirtækisins. Hann tekur við starfinu af Helga Þór Ingasyni, sem ráðinn var tímabundið í ágúst 2010. Bjarni tekur til starfa 1. mars. Umsækjendur um starfið voru sextíu talsins. Bjarni hefur verið forstjóri Landsvirkjunar Power, dótturfélags Landsvirkjunar frá 2008 en áður var hann framkvæmdastjóri orkusviðs Landsvirkjunar um sjö ára skeið. Bjarni hefur sinnt ýmsum stjórnunarstörfum á ferli sínum, m.a. sem tæknistjóri Jarðborana hf, framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar í Mývatnssveit og forstjóri Íslenska járnblendifélagsins á Grundartanga. Bjarni er varaforseti Alþjóða Vatnsorkusamtakanna, International Hydropower Association. Bjarni las jarðfræði í Háskóla Íslands og lauk B.Sc. prófi árið 1981. Þá tók hann licentiat-próf í námaverkfræði frá Tækniháskólanum í Luleå í Svíþjóð 1986. |
|||
|