2010-08-25 14:10:47 CEST

2010-08-25 14:11:45 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Ársreikningur

Hagnaður TM á fyrri helmingi ársins 2010 nam 319 m.kr


Helstu rekstrarniðurstöður Tryggingamiðstöðvarinnar (TM) janúar til júní 2010:

•  Hagnaður  TM af reglulegri starfsemi á fyrri helmingi ársins 2010 var 319
   m.kr. samanborið við 491 m.kr. hagnað á sama tímabili í fyrra.
•  Eigin iðgjöld jukust um 11% og voru 5.032 m.kr. samanborið við 4.524 m.kr. á
   sama tímabili 2009.
•  Fjárfestingatekjur félagsins voru jákvæðar sem nemur 1.057 m.kr. á fyrri
   helmingi ársins en voru 2.194  m.kr. á sama tímabili 2009. 

•  Eigin tjónakostnaður lækkaði um 5% og var 3.996 m.kr. á fyrri helmingi ársins
   samanborið við 4.185 m.kr. á sama tímabili 2009. 

•  Rekstrarkostnaður lækkaði um 5% og var 1.124 m.kr. samanborið við 1.178 m.kr.
   á sama tímabili 2009. 

•  Eigið tjónshlutfall félagsins lækkaði úr 92% í 79% á milli ára.
   Kostnaðarhlutfall lækkaði sömuleiðis úr 23% í 19% Samsett hlutfall er nú 99%
   samanborið við 116% á sama tímabili 2009. 

•  Heildareignir TM voru 31.613 m.kr. þann 30. júní 2010 en voru 30.699  m. kr.
   á sama tíma í fyrra. 

•  Eigið fé nam 8.357 m.kr. og var eiginfjárhlutfall 26% þann 30. júní 2010.

Sigurður Viðarsson, forstjóri TM:

„Hagnaður félagsins af reglulegri starfsemi á fyrstu 6 mánuðum ársins dregst
saman um 35% milli ára og skýrist það fyrst og fremst af lækkun
fjárfestingatekna. Mikilvægum áfanga var náð á fyrri hluta ársins í
vátryggingarekstrinum þar sem samsett hlutfall fer nú í fyrsta skipti í langan
tíma undir 100%. Bæði tjóns- og kostnaðarhlutfall lækka milli ára og
rekstrarkostnaður félagsins lækkar nú í krónum talið, þriðja árið í röð.
Ánægjulegt er að afkoma flestra vátryggingagreina er nú á áætlun. Endurskoðun
verðlagningar og áhættumats í slysa- og ábyrgðartryggingum er þó ekki lokið.
Draga má nokkurn lærdóm af mikilli fjölgun ábyrgðartjóna í kjölfar
efnahagshrunsins. Styrkur TM kemur skýrt fram í efnahagsreikningi félagsins sem
sýnir hátt hlutfall peningalegra eigna, ríkisskuldabréfa og annarra
auðseljanlegra eigna. Félagið er því vel í stakk búið til þess að takast á við
framtíðina.“ 

„Uppgjörið sýnir að starfsfólk TM hefur náð umtalsverðum árangri í rekstri
félagsins og staðið sig einstaklega vel við sérstakar aðstæður á íslenskum
tryggingamarkaði. Það er sérstakt fagnaðarefni að  vátryggingareksturinn er nú
loks að ná jafnvægi, enda grundvallaratriði að sú starfsemi beri sig.” 

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Viðarsson forstjóri, s. 515 2609