|
|||
![]() |
|||
2012-02-13 12:45:00 CET 2012-02-13 12:45:02 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 12 0515 OG RIKV 12 0815Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 12 0515 og RIKV 12 0815 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 12 0515: Alls bárust 18 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 16.950 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 15.950 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,270 (flatir vextir 2,94%). RIKV 12 0815: Alls bárust 12 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.350 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 1.900 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,506 (flatir vextir 3,00%). |
|||
|