|
|||
2008-07-21 13:05:39 CEST 2008-07-21 13:06:37 CEST BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Exista hf. - FyrirtækjafréttirKynning á uppgjöri annars ársfjórðungs 2008 verður 1. ágúst n.k.Exista hf. mun birta afkomu sína fyrir fyrstu sex mánuði 2008 eftir lokun markaða fimmtudaginn 31. júlí næstkomandi. Kynningarfundur 1. ágúst Kynning á uppgjörinu fer fram í höfuðstöðvum Exista föstudaginn 1. ágúst kl. 8:30. Þar munu stjórnendur félagsins gera grein fyrir reikningum og svara fyrirspurnum. Húsið opnar kl. 8:00 og verður boðið upp á léttan morgunverð áður en kynning hefst. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum Exista að Ármúla 3 í Reykjavík, á 5. hæð. Kynningarfundurinn fer fram á ensku og er opinn hluthöfum og öðrum markaðsaðilum. Netvarp og símafundur Kynningarfundinum í Reykjavík verður varpað í beinni útsendingu á vef félagsins, www.exista.com, og hefst netvarpið kl. 8:30. Jafnframt er hægt að taka þátt í fundinum símleiðis og leggja fram spurningar með því að hringja í síma 800 8660 eða +44 (0)20 3043 2436 (breskt númer). Að fundi loknum má nálgast kynningarefni og upptöku af fundinum á heimasíðu Exista, www.exista.com. |
|||
|