|
|||
![]() |
|||
2013-06-05 18:04:06 CEST 2013-06-05 18:05:08 CEST REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - FyrirtækjafréttirFlutningatölur maí 2013Í maí flutti félagið 192 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 16% fleiri en á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 24% og sætanýting var 78,7% samanborið við 82,0% á sama tíma í fyrra. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 32% og voru þeir 45% af heildarfarþegafjölda félagsins í millilandaflugi. Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 25 þúsund í maí og fækkaði um 11% á milli ára. Framboð félagsins í maí var dregið saman um 16% samanborið við maí 2012. Sætanýting nam 70,3% og jókst um 1,9 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 3% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 3% frá því á síðasta ári. Seldum gistinóttum á hótelum félagsins fjölgaði um 8% miðað við maí á síðasta ári. Herbergjanýting var 72,1% samanborið við 71,1% í maí í fyrra. MILLILANDAFLUG MAÍ 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%) ----------------------------------------------------------------------------- Fjöldi farþega 192.321 16% 698.411 15% Sætanýting 78,7% -3,3 %-stig 75,8% -2,7 %-stig Framboðnir sætiskm. (ASK'000) 717.296 24% 2.650.534 23% INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG MAÍ 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%) ----------------------------------------------------------------------------- Fjöldi farþega 25.108 -11% 121.010 -9% Sætanýting 70,3% 1,9 %-stig 70,3% 2,3 %-stig Framboðnir sætiskm. ('000) 11.288 -16% 54.957 -13% LEIGUFLUG MAÍ 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%) ----------------------------------------------------------------------------- Flugvélanýting 100,0% 6,4 %-stig 87,1% -2,1 %-stig Seldir blokktímar 2.400 -3% 12.009 -9% FRAKTFLUTNINGAR MAÍ 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%) ----------------------------------------------------------------------------- Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 17.172 8% 71.224 8% Seldir tonnkm. (FTK´000) 8.947 3% 39.066 3% HÓTEL MAÍ 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%) ----------------------------------------------------------------------------- Framboðnar gistinætur 23.264 7% 112.064 18% Seldar gistinætur 16.775 8% 73.514 19% Herbergjanýting 72,1% 1,0 %-stig 65,6% 0,7 %-stig Nánari upplýsingar veita: Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801 Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010 |
|||
|