2008-02-07 10:58:59 CET

2008-02-07 11:00:00 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
365 hf. - Ársskýrsla/ársreikningur

Ársuppgjör 2007


Mikill viðsnúningur í rekstri 365 hf. frá fyrra ári 

Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) ársins 2007 nam
1.162 m.kr. en á árinu 2006 var EBITDA tap 12 m.kr. ef söluhagnaður
dreifikerfis* er undanskilinn. 

Tekjur á árinu 2007 námu 12.381 m.kr. og jukust um tæp 12% á milli ára.

Rekstrarbati varð að upphæð 1.364 m.kr. hjá félaginu ef horft er til afkomu
fyrir skatta af áframhaldandi starfsemi, en tap fyrir skatta nam 136 m.kr. á
árinu 2007. 

Niðurstaða reksturs á árinu 2007 varð tap að upphæð 2.283 m.kr. að teknu
tilliti til þeirrar starfsemi sem hefur verið lögð niður en eignarhlutur í
Wyndeham var færður niður að fullu að fjárhæð 2.095 m.kr. 

Helstu niðurstöður ársins:

•	Sala tímabilsins nam 12.381 m.kr. og jókst um 1.285 m.kr. eða 11,6% frá árinu
2006 
•	Innri vöxtur tekna (pro forma**) var 10,5% frá fyrra ári
•	Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 1.162 m.kr.
en var neikvæður um 12 m.kr. á árinu 2006 af reglulegum rekstri*. 
•	EBITDA hlutfall nam 9,4% en reiknaðist sem 0% af reglulegum rekstri* í fyrra.
•	Nettó fjármagnsgjöld námu 646 m.kr. en þar á meðal var nettó gengishagnaður
184 m.kr. 
•	Tap eftir skatta nam 2.283 m.kr.
•	Eigið fé var 4.545 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 31%
•	Veltufjárhlutfallið var 0,87 en var um síðustu áramót 0,62

Helstu niðurstöður fjórða ársfjórðungs:

•	Sala tímabilsins nam 4.051 m.kr. og jókst um 871 m.kr. eða 27,4% frá árinu
2006 
•	Innri vöxtur (pro forma**) á tímabilinu var 10,6% frá fyrra ári
•	Bókfærður var 33 m.kr. söluhagnaður vegna sölu á hljóðverum félagsins
•	Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 404 m.kr. en
var um 25 m.kr. af reglulegum rekstri á fjórða ársfjórðungi 2006 
•	EBITDA hlutfall nam 10% en var 1% af reglulegum rekstri í fyrra
•	Niðurstöður virðisrýrnunarprófa leiddu til niðurfærslu viðskiptavildar að
upphæð 89 m.kr. 
•	Nettó fjármagnsgjöld námu 262 m.kr. en þar á meðal var gengistap 117 m.kr.
•	Tap eftir skatta nam 2.243 m.kr.


Ari Edwald, forstjóri: „Félagið er í sókn“
„Rekstrarárangur á árinu 2007 sýnir að félagið er í sókn bæði er varðar
tekjuvöxt og afkomu grunneininga sem staðfestir viðsnúning á rekstri félagsins
frá fyrra ári.  Rekstur fjölmiðlahlutans gekk vel á árinu og skilaði 900 m.kr.
í EBITDA sem er einn besti árangur sem náðst hefur í þessari starfsemi á
Íslandi.  Sala og dreifing í afþreyingahluta rekstursins gekk vel á árinu en
hinsvegar var framleiðsluhlutinn ekki að standa undir væntingum.  Í heild er
rekstur félagsins þó mjög nærri þeim áætlunum sem kynntar hafa verið.  Við
viljum gæta varfærni við mat á eignarhlutum félagsins og með því að færa niður
eignahlut í Wyndeham Press Group að fullu hefur óvissu verið eytt og gegnsæi
félagsins aukið.  Á árinu voru stigin mikilvæg skref í að styrkja fjárhagsstöðu
félagsins með sölu á eignum og niðurgreiðslu skulda.  Veltufjárhlutfall
félagsins er í árslok 0,87 og eiginfjárhlutfall 31%.  Stefnt er að því að auka
fjárhagslegan styrk félagsins ennfrekar á næstunni með aukningu á hlutafé að
söluverði um 1.500 m.kr. en með þeirri ráðstöfun er verið að laga efnahag
félagsins að núverandi starfsemi og búa í haginn fyrir áframhaldandi
uppbyggingu.“ 





**	Í Pro forma útreikningi eru þeir miðlar sem nú eru í rekstri félagsins
bornir saman milli ára og tekið tillit til þess að rekstrareiningarnar Sena og
D3 urðu hluti af samstæðunni frá 1. febrúar 2006. 
*	Þegar fjallað er um EBITDA af reglulegum rekstur hefur söluhagnaður
dreifikerfis sjónvarps að upphæð 1.563 m.kr. verið undanskilinn á árinu 2006. 
Ársreikningur 365 hf. fyrir árið 2007


Reikningsskilaaðferðir og samþykkt reikninga
Ársreikningur 365 hf. er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla
(IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af ESB.  Ársreikningur samstæðunnar
hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess ásamt hlutdeild
samstæðunnar í hlutdeildarfélögum.  EFG ehf. varð hluti af samstæðunni frá 1.
október 2007.  Stjórn félagsins samþykkti ársreikninginn þann 6. febrúar 2007. 

Rekstrarreikningur
Rekstri 365 hf. er skipt upp í tvo starfsþætti í ársreikningnum. Annars vegar
fjölmiðla sem 365 miðlar ehf. tilheyra og hins vegar afþreying sem félögin Sena
ehf. og EFG ehf. falla undir. 


Félagið í heild
Sölutekjur ársins 2007 námu 12.381 m.kr. en voru 11.096 á árinu 2006 og jukust
því um 1.285 m.kr. eða tæplega 12% milli ára. EBITDA ársins var 1.162 m.kr. en
var neikvæð um 12 m.kr. á árinu 2006 og hefur því aukist um 1.174 m.kr. á milli
ára af reglulegum rekstri. 

Í lok september seldi félagið fasteign að Vatnagörðum 4 og rekstur hljóðvera
sinna. Söluhagnaður afþreyingahlutans var því samtals 68 m.kr. 

Sölutekjur námu 4.051 m.kr. á fjórða ársfjórðungi 2007 og jukust um 27,4% frá
fyrra ári. 
Innri vöxtur (pro forma) nam hins vegar 10,6%.  Framlegð af rekstri 365 hf. nam
1.347 m.kr. á fjórða ársfjórðungi 2007 og var framlegðarhlutfallið 33,2%* en
var 28,2% á sama tímabili í fyrra.  Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og
skatta (EBITDA) nam á fjórða ársfjórðungi 404 m.kr. og jókst um 379 m.kr. frá
fyrra ári af reglulegri starfsemi. Hagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta
(EBIT) nam 194 m.kr. en var neikvæður um 226 m.kr.** á sama tíma í fyrra.
Rekstrarbatinn er því 420 m.kr. 


Fjölmiðlar
Sölutekjur fjölmiðla námu 8.182 m.kr. á árinu 2007 og jukust um 432 m.kr. eða
5,6% frá fyrra ári. Innri vöxtur (pro forma) nam 881 m.kr. sem er 12,2% aukning
frá fyrra ári. EBITDA fjölmiðla nam 900 m.kr. á árinu 2007 en hún var 165 m.kr.
að teknu tilliti til söluhagnaðar dreifikerfis og einskiptiskostnaðar vegna
endurskipulagningar á árinu 2006.  Aukningin var því 735 m.kr. frá fyrra ári
sem endurspeglar vel heppnaða endurskipulagningu á rekstri
fjölmiðlafyrirtækisins á síðasta ári. 

Sölutekjur fjölmiðla námu 2.368 m.kr. á fjórða ársfjórðungi og hækkuðu um 303
m.kr. eða 14,7% frá fyrra ári.  Ef aðeins er horft til þeirra miðla sem nú eru
í rekstri hjá 365 miðlum ehf. (pro forma) jukust tekjur þeirra um tæp 18,4% á
milli ára. Góður vöxtur var á öllum sviðum fjölmiðlahlutans í ársfjórðungnum
m.v. fyrra ár. Þetta á jafnt við um auglýsingatekjur og áskriftatekjur. EBITDA
fjölmiðla nam 319 m.kr. á fjórða ársfjórðungi 2007 samanborið við neikvæða
EBITDA 70 m.kr. fyrir sama tímabil í fyrra af reglulegri starfsemi** og hækkaði
því um 389 m.kr. milli ára. 

Afþreying
Sölutekjur afþreyingasviðs á árinu 2007 námu 4.955 m.kr. og jukust um 1.187
m.kr. á milli ára eða 31,5%.  Innri vöxtur (pro forma) afþreyingarsviðs jókst
um 12,7% á milli ára.  EBITDA ársins nam 345 m.kr. og jókst um 40 m.kr. eða 13%
milli ára. Rekstur sölu- og dreifingarhluta afþreyingasviðs (Sena ehf.) gekk
vel á árinu, en rekstur framleiðsluhlutans (EFG ehf.) stóðst ekki væntingar
stjórnenda. Síðustu mánuði hefur verið unnið að því að endurskipuleggja
reksturinn með nýjum stjórnendum. 

Tekjur á afþreyingarsviði námu 1.839 m.kr. á fjórða ársfjórðungi 2007 en námu
1.420 m.kr. á sama tímabili árið áður og jukust því um 419 m.kr. eða 29,5%. 
EBITDA afþreyingasviðs á fjórða ársfjórðungi nam 152 m.kr. og jókst um 115
m.kr. frá fyrra ári. Rekstrarbatann má rekja til betri afkomu af sölu- og
dreifingarhluta afþreyingasviðs (Sena ehf.). 


Efnahagsreikningur
Heildareignir samkvæmt efnahagsreikningi þann 31. desember 2007 námu 14.683
m.kr. borið saman við 18.769 m.kr. í árslok 2006.  Veltufjárhlutfall var 0,87 í
lok árs 2007 borið saman við 0,62 í lok árs 2006.  Eiginfjárhlutfall var 31%
samanborið við 32,7% í lok árs 2006. 

Heildarskuldir félagsins hafa lækkað um 2.494 m.kr. frá árslokum 2006 og þar af
hafa vaxtaberandi lán félagsins lækkað um 1.434 m.kr., en félagið seldi
eignarhlut sinn í Hands Holding í byrjun júlí og var andvirðinu varið til
lækkunar skulda. Viðskiptaskuldir og aðrar skuldir hafa lækkað um 1.106 m.kr.
frá fyrra ári. Nettó vaxtaberandi skuldir í lok árs 2007 námu 7.078 m.kr. 

*	Framlegðarhlutfall er reiknað sem sala að frádregnu kostnaðarverði seldrar
vöru og þjónustu sem hlutfall af sölutekjum. 

**	Söluhagnaður vegna dreifikerfis sjónvarps að upphæð 1.563 m.kr. er ekki
meðtalinn. 



Sjóðstreymi
Handbært fé til rekstrar á tímabilinu án fjármagnsliða og skatta nam 354 m.kr.
Neikvætt fjárflæði skýrist m.a. af því að í upphafi árs voru greiddar upp
viðskiptaskuldir frá fyrra ári sem tilheyrðu fjárfestingastarfsemi félagsins á
því ári sem nú hefur verið aflögð.  Á tímabilinu hækkaði fyrirframgreiddur
kostnaður og skýrist það að mestu af auknum innkaupum af íþróttaefni. Á
tímabilinu voru greidd vaxtagjöld að upphæð 812 m.kr. sem voru hærri en ella
vegna sérstakrar uppgreiðslu á lánum félagsins í kjölfar eignasölu.
Heildarfjárfestingahreyfingar námu 1.784 m.kr. og þar af námu fjárfestingar í
varanlegum rekstrarfjármunum 426 m.kr. en á sama tímabili voru seldir
varanlegir rekstrarfjármunir fyrir 194 m.kr. Fjármögnunarhreyfingar voru
neikvæðar um 1.458 m.kr. Félagið seldi eignarhlut sinn í Hands Holding á
tímabilinu að upphæð 1.620 m.kr. og andvirði þess var notað til að greiða niður
lán. Handbært fé í lok árs nam 190 m.kr. og lækkaði um 756 m.kr. frá ársbyrjun. 


Rekstrarhorfur 2008
Stjórnendur eru ánægðir með þann árangur sem náðist á síðasta ári. Eftir slakan
rekstrarárangur á árinu 2006 var rekstur félagsins endurskipulagður þar sem
lögð var áhersla á að styrkja helstu rekstrareiningar fjölmiðlahluta félagsins
sem eru Fréttablaðið, Stöð 2, Bylgjan og Vísir. Samhliða þessu voru aðrar
rekstrareiningar ýmist lagðar niður eða seldar, jafnframt því sem lögð var
áhersla á að lækka kostnað. Þessar aðgerðir hafa skilað sér í mjög bættri
framlegð. 

Með niðurfærslu á eignarhlut í Wyndeham hefur óvissu verið eytt og félagið
orðið skýr valkostur fyrir fjárfesta á sviði fjölmiðlunar og afþreyingar. 

Á árinu voru stigin mikilvæg skref í að styrkja fjárhagsstöðu félagsins með
sölu á eignum og niðurgreiðslu skulda. Til að auka ennfrekar fjárhagslegan
styrk félagsins er í undirbúningi hlutafjáraukning að söluverði um 1.500 m.kr.
og hefur stjórn félagsins samþykkt að leggja fram tillögu á næsta hluthafafundi
að svo verði.  Með fyrirvara um samþykki þess fundar hefur verið samið við Saga
Capital fjárfestingabanka um sölutryggingu á útboðinu. 

Stjórnendur áætla að tekjur ársins 2008 verði á bilinu 13,5 til 14,0 milljarðar
og EBITDA verði 1.300 til 1.400 m.kr. 


Kynningarfundur
Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 7.
febrúar, kl. 12:00 að Skaftahlíð 24 í norðurhúsi (skrifstofur).  Þar munu Ari
Edwald forstjóri og Viðar Þorkelsson fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og
starfsemi þess. 

Hægt er að nálgast upplýsingar eftir fundinn á heimasíðu félagsins www.365.is
og á heimasíðu OMX Nordic Exchange á Íslandi, www.omxgroup.com/nordicexchange. 


Birtingardagar fyrir reikningsárið 2008
Fyrsti ársfjórðungur: 6. maí 2008
Annar ársfjórðungur: 30. júlí 2008
Þriðji ársfjórðungur: 30. október 2008
Fjórði ársfjórðungur og ársuppgjör 2008: 4. febrúar 2009


Nánari upplýsingar veita:
Ari Edwald forstjóri í síma 821 0365 og Viðar Þorkelsson fjármálastjóri í síma
669 9100 


















**	Söluhagnaður vegna dreifikerfis sjónvarps að upphæð 1.563 m.kr. er ekki
meðtalinn