|
|||
2015-07-16 17:05:36 CEST 2015-07-16 17:06:37 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumNýr forstjóri ÍbúðalánasjóðsStjórn Íbúðalánssjóðs hefur ráðið Hermann Jónasson sem forstjóra sjóðsins. Hermann er lögfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands (1995), héraðsdómslögmaður (2000) og löggiltur verðbréfamiðlari frá Háskólanum í Reykjavík (2003). Hermann starfaði: -- hjá Fjármálaráðuneytinu sem lögfræðingur á Tekju- og lagaskrifstofu ráðuneytisins (1995-2000), -- hjá Landsbréfum hf. sem forstöðumaður Verðbréfasviðs (2000-2002), -- hjá Landsbanka Íslands hf. sem forstöðumaður Verðbréfaþjónustu og Sérbankaþjónustu auk þess að vera framkvæmdastjóri Íslenska lífeyrissjóðsins (2002-2004), -- hjá Landsbanka Íslands hf. sem framkvæmdastjóri Sölu- og markaðssviðs (2004-2008) -- hjá Tal hf. sem forstjóri og leiddi þar m.a. sameiningu fjarskiptafyrirtækjanna Hive og Sko (2008-2010) -- hjá Arion banka hf. sem framkvæmdastjóri Þróunar- og markaðssviðs (2010-2011) -- hjá Lögfræðistofu Jónatansson & co. að lögfræðistörfum fyrir slitastjórn VBS fjárfestingarbanka hf. (2011-2015) Hermann er giftur Guðrúnu Sigtryggsdóttur, yfirlögfræðingi hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar og saman eiga þau þrjár dætur. Hermann mun hefja störf hjá Íbúðalánasjóði n.k. mánudag 20. júlí. |
|||
|