|
|||
2008-07-18 18:52:09 CEST 2008-07-18 18:53:10 CEST REGULATED INFORMATION Nýherji hf. - Ársreikningur- Uppgjör Nýherja hf. á fyrri árshelmingi 2008Helstu niðurstöður á fyrri árshelmingi • Ágæt afkoma af kjarnastarfsemi Nýherja og starfsemi Applicon erlendis, en afkoma af fjárfestingum í nýrri starfsemi undir væntingum • Sala á vöru og þjónustu nam 7.129 mkr ISK, þar af voru um 22% af starfsemi félagsins erlendis • EBITDA var 268 mkr, en var 302 mkr á fyrri árshelmingi 2007 • Gengistap var 455 mkr á fyrri árshelmingi • Tap tímabilsins nam 432 mkr samanborið við 209 mkr hagnað á fyrri árshelmingi 2007 Þórður Sverrisson, forstjóri: “Rekstur og afkoma af kjarnastarfsemi Nýherja var ágæt og einnig af starfsemi Applicon erlendis. Slök afkoma af fjarfestingum í nýrri starfsemi íþyngja rekstrinum, en áfram verður unnið að því að ná fram samlegð í núverandi og nýrri starfsemi innan Nýherja. EBITDA var lakari nú en á sama ársfjórðungi á síðasta ári, m.a. vegna tapreksturs einstakra eininga og talsverðrar gjaldfærslu á hugbúnaðarþróun. Lækkun á gengi íslensku krónunnar og háir vextir á Íslandi valda því einnig að afkoma félagsins er mun lakari en áætlanir gerðu ráð fyrir.” Sjá framhald fréttatilkynningar í viðhengi. |
|||
|