2014-03-13 12:45:00 CET

2014-03-13 12:45:01 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 14 0616 OG RIKV 14 0915


Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 14 0616 og RIKV 14 0915 með
tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

                    Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 14 0616:

Alls bárust 10 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.680 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 3.450 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,905 (flatir
vextir 4,38%). 

RIKV 14 0915:

Alls bárust 13 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.110 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 2.760 m.kr. að nafnverði á verðinu 97,776 (flatir
vextir 4,50%).