2017-02-13 18:54:18 CET

2017-02-13 18:54:18 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Arion Bank hf. - Ársreikningur

Afkoma Arion banka árið 2016


Hagnaður Arion banka á árinu 2016 nam 21,7 milljörðum króna samanborið við 49,7
milljarða króna árið 2015. Arðsemi eigin fjár var 10,5%  á árinu samanborið við
28,1% árið 2015. Reiknaður hagnaður af reglulegri starfsemi nam 9,7 milljörðum
króna samanborið við 14,1 milljarð á árinu 2015. Arðsemi eigin fjár af
reglulegri starfsemi  nam 4,7% samanborið við 8.7% á árinu 2015. 

Heildareignir námu 1.036,0 milljörðum króna samanborið við 1.011,0 milljarða
króna í árslok 2015 og eigið fé hluthafa bankans nam 211,2 milljörðum króna,
samanborið við 192,8 milljarða króna í árslok 2015. Efnahagur bankans er
sterkur og á árinu 2016 var mikil áhersla lögð á trygga lausafjárstöðu í
aðdraganda afnáms fjármagnshafta. 

Eiginfjárhlutfall bankans var í árslok 27,1% en var 24,2% í árslok 2015.
Hlutfall eiginfjárþáttar A hækkaði og nam 26,5% samanborið við 23,4% í árslok
2015. 

Helstu rekstrar- og kennitölur bankans eru eftirfarandi:

Í milljónum króna                              2016      2015  4F 2016  4F 2015
Hreinar vaxtatekjur                          29.900    26.992    7.842    6.705
Hreinar þóknanatekjur                        13.977    14.484    3.765    3.757
Hreinar fjármunatekjur                        5.162    12.844      823    2.669
Hreinar tekjur af tryggingastarfsemi          1.395       761      731      216
Hlutdeild í hagnaði hlutdeildarfélaga           908    29.466      198   22.510
Aðrar rekstrartekjur                          2.096     1.622      431      200
-------------------------------------------------------------------------------
Rekstrartekjur                               53.438    86.169   13.790   36.057
Laun og launatengd gjöld                   (16.659)  (14.891)  (4.407)  (4.571)
Annar rekstrarkostnaður                    (13.881)  (12.917)  (3.803)  (4.169)
Bankaskattur                                (2.872)   (2.818)    (682)    (650)
Hrein virðisbreyting                          7.236   (3.086)      409  (2.972)
-------------------------------------------------------------------------------
Hagnaður fyrir skatta                        27.263    52.457    5.307   23.695
Tekjuskattur                                (6.410)   (3.135)  (1.149)      504
Afkoma af aflagðri starfsemi eftir skatta       886       360      317       83
-------------------------------------------------------------------------------
Hagnaður                                     21.739    49.682    4.475   24.282
-------------------------------------------------------------------------------
                                                                               
                                                                               
Helstu kennitölur                                                              
Arðsemi eigin fjár                            10,5%     28,1%     8,6%    51,6%
Vaxtamunur á vaxtaberandi eignir               3,1%      3,0%     3,2%     2,9%
Kostnaðarhlutfall                             57,2%     32,3%    59,5%    24,2%
Tier 1 hlutfall                               26,5%     23,4%    26,5%    23,4%



Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Afkoma Arion banka á árinu 2016 var viðunandi og í takt við væntingar.
Grunnstarfsemi bankans stendur vel og fjárhagsstaða bankans heldur áfram að
styrkjast. Eiginfjárhlutfall bankans er 27,1% og lausafjárhlutfall 171,3%, sem
er vel yfir þeim kröfum sem gerðar eru til bankans og afar sterkt í alþjóðlegum
samanburði. Arion banki er í dag alhliða fjármálafyrirtæki með sterka stöðu
bæði á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði og lánasafn bankans endurspeglar það
vel. Sú trausta staða sem bankinn nýtur á þeim mörkuðum sem hann starfar á og
það fjölbreytta þjónustuframboð sem bankinn býður sínum viðskiptavinum felur í
sér jákvæða áhættudreifingu. Sterk eiginfjárstaða leiðir til þess að
umtalsverðir möguleikar eru fyrir bankann til arðgreiðslu eða annarrar
ráðstöfunar eigin fjár. 

Árið 2016 einkenndist af fjárfestingum til framtíðar í þjónustu sem
viðskiptavinir bankans óska eftir. Kaup bankans á tryggingafélaginu Verði eru
gott dæmi um það en þau gengu í gegn á árinu. Þar með bætast skaðatryggingar
við þjónustuframboð bankans. Staða Varðar á tryggingamarkaði er góð, félagið er
með um 10% markaðshlutdeild og nýtur vinsælda meðal sinna viðskiptavina.
Þjónusta Varðar er því mikilvægur liður í því að veita viðskiptavinum Arion
banka alhliða fjármálaþjónustu. 

Upplýsingatækni skipaði stóran sess í starfsemi bankans á árinu. Hugað var að
skipan upplýsingatæknimála innan bankans og unnið að útvistunarsamningum við
Nýherja sem lokið var í janúar 2017. Nýherji sem er eitt fremsta
upplýsingatæknifyrirtæki landsins sér nú um rekstrarþátt upplýsingakerfa
bankans. Áfram starfar öflugur hópur starfsfólks á sviði upplýsingatækni innan
bankans en stærstur hluti þeirra sinnir hugbúnaðarþróun, m.a. þróun nýrra
stafrænna lausna en á árinu kynnti Arion banki nokkurn fjölda nýrra stafrænna
lausna. Viðskiptavinir bankans geta nú til dæmis fengið staðfest greiðslumat á
aðeins nokkrum mínútum á vef Arion banka. Við munum halda ótrauð áfram á
þessari braut enda óska viðskiptavinir okkar eftir því að geta sinnt sínum
fjármálum þegar og þar sem þeim hentar og við munum leggja okkur fram um að
koma til móts við þeirra óskir. Þannig er eftirspurn eftir fjármálaþjónustu að
þróast og breytast og við leggjum áherslu á að breytast með þeirri þróun. 

Á vormánuðum opnaði Arion banki útibú í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á
Keflavíkurflugvelli og tók þar með yfir alla fjármálaþjónustu á flugvellinum,
einu stærsta markaðstorgi landsins. Mikill vöxtur hefur verið í ferðaþjónustu
hér á landi og er því um spennandi tækifæri að ræða fyrir bankann. 

Dótturfélög Arion banka eru mikilvægur þáttur í stefnu og þjónustuframboði
bankans. Auk Varðar þá eru sjóðastýringarfyrirtækið Stefnir og greiðsluþjónustu
fyrirtækið Valitor mikilvæg dótturfélög. Stefnir er stærsta
sjóðastýringafyrirtæki landsins og greiðsluþjónustufyrirtækið Valitor er í
mikilli sókn í Danmörku og Bretlandi. Tekjur af alþjóðlegri starfsemi Valitor
jukust um 50% á árinu 2016 og nema nú rúmlega 60% af heildartekjum
fyrirtækisins. Félagið hefur um langt árabil haft umsvif á þessum mörkuðum og
er að skapa sér áhugaverða stöðu. Með kaupum á Verði og fjárfestingu í erlendri
starfsemi Valitor er Arion banki að styrkja enn frekar fyrirtækjasamstæðu
bankans og búa undir framtíðina. 

Arion banki gaf í tvígang út skuldabréf í evrum til breiðs hóps fjárfesta á
árinu. Í upphafi árs 2017 gaf bankinn svo út viðbótarútgáfu við síðari
útgáfuna, sem nú nemur 500 milljónum evra. Hafa kjör bankans á erlendum
lánamörkuðum batnað mikið á undanförnum misserum sem er til marks um aukið
traust skuldabréfafjárfesta til bankans og íslensks hagkerfis. Jafnframt
hækkaði Standard & Poor´s á árinu lánshæfismat bankans úr BBB-/A-3 í BBB/A-2. 

Það eru mikil vonbrigði að stjórnvöld hafi ákveðið að framlengja bankaskattinn
svokallaða, sem átti að vera tímabundinn en er nú hluti af langtíma
ríkisfjármálaáætlun. Bankaskattur er skattur á fjármögnun bankanna.
Sambærilegur skattur leggst ekki á aðrar innlendar atvinnugreinar né á erlenda
banka sem eru með umsvif hér á landi og lána til íslenskra fyrirtækja. Hér er á
ferðinni sértæk skattlagning sem gerir bönkum erfitt um vik í samkeppni, bæði á
innlendum markaði en einnig í samkeppni við erlend fjármálafyrirtæki á
íslenskum markaði. Bankar keppa á innlendum markaði við lífeyrissjóði þegar
kemur að veitingu íbúðalána en lífeyrissjóðir greiða hvorki tekjuskatt né
fjársýslu- eða bankaskatt. Ljóst er að samkeppnisstaðan á þessum markaði er
ekki jöfn og aðgerðir stjórnvalda fela í sér einkennilega íhlutun á
samkeppnismarkaði. Alls greiðir Arion banki um fimm milljarða í skatta á árinu
sem fyrirtæki í öðrum atvinnugreinum greiða ekki. Bankaskatturinn hefur haft
takmörkuð áhrif á verðlagningu bankanna hingað til enda átti hann að vera
tímabundinn. Þar sem skatturinn leggst á fjármögnun banka þá leiðir hann til
kostnaðarauka hjá viðskiptavinum bankanna og stuðlar þegar allt kemur til alls
að hærra vaxtastigi í landinu. Mikilvægt er að þessi skattlagning verði
endurskoðuð. 

Síðastliðið sumar sendu Kaupþing ehf., sem á 87% hlutafjár Arion banka, og
Arion banki frá sér tilkynningu þar sem gerð var grein fyrir því að Arion banki
og Kaupþing væru að meta þá möguleika sem fyrir hendi væru varðandi eignarhlut
Kaupþings í bankanum. Jafnframt var tekið fram að almennt hlutafjárútboð væri
meðal þeirra kosta sem verið væri að skoða. Þessi vinna varðandi eignarhlut
Kaupþings stendur enn yfir.“ 



Fundur með markaðsaðilum

Arion banki mun halda símafund á ensku fyrir markaðsaðila, þriðjudaginn 14.
febrúar, klukkan 13:00. Á fundinum mun Stefán Pétursson, fjármálastjóri Arion
banka, fara yfir helstu atriði í uppgjöri bankans. Áhugasamir geta sent
tölvupóst á ir@arionbanki.is og fá í kjölfarið sendar nánari upplýsingar
varðandi þátttöku á símafundinum. 



Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, samskiptasviði Arion banka,
haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.