|
|||
2015-01-20 16:31:00 CET 2015-01-20 16:31:02 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstöður viðbótarútgáfuÚtboð RIKB 20 0205 og RIKB 31 0124 viðbótarútgáfa Samkvæmt 5. grein í skilmálum um útboð ríkisbréfa, sem haldið var 16. janúar sl. stóð aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í RIKB 20 0205 fyrir 115 m. kr. og í RIKB 31 0124 fyrir 635 m. kr. Selt magn í RIKB 20 0205 nemur 2.215 m.kr. og í RIKB 31 0124 7.035 m.kr. Heildarstærð RIKB 20 0205 eftir útboð er nú 30.009.000.000 kr. að nafnvirði og 85.286.400.000 kr í RIKB 31 0124 . Uppgjör er 21. janúar 2015. |
|||
|