2019-08-16 16:20:52 CEST

2019-08-16 16:21:04 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Landsvirkjun - Árshlutareikningur - 6 mán.

Sex mánaða uppgjör Landsvirkjunar


Sterk fjármunamyndun og eiginfjárhlutfall í sögulegum hæðum

Helstu atriði árshlutareiknings

  • Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 96,4 milljónum USD (12,0 ma.kr.), en var 86,7 milljónir USD á sama tímabili árið áður og hækkar því um  11,1% milli tímabila. 
  • Hagnaður tímabilsins var 68,6 milljónir USD (8,5 ma.kr.) en var 54,5 milljónir USD á sama tímabili árið áður.
  • Rekstrartekjur námu 259,7 milljónum USD (32,2 ma.kr.) og lækka um 9,8 milljónir USD (3,6%) frá sama tímabili árið áður.
  • EBITDA nam 198,2 milljónum USD (24,6 ma.kr.). EBITDA hlutfall er 76,3% af tekjum, en var 73,4% á sama tímabili í fyrra.
  • Nettó skuldir lækkuðu um 126,1 milljón USD (15,6 ma.kr.) frá áramótum og voru í lok júní 1.758,5 milljónir USD (218,1 ma.kr.).  
  • Handbært fé frá rekstri nam 159,9 milljónum USD (19,8 ma.kr.) sem er 7,1% hækkun frá sama tímabili árið áður.

Hörður Arnarson, forstjóri:

„Rekstur aflstöðva Landsvirkjunar gekk vel á fyrri hluta ársins 2019. Rekstur fyrirtækisins heldur áfram að þróast í rétta átt og efnahagur þess að styrkjast, en hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði eykst um 10 milljónir dollara milli ára. Nettó skuldir lækka um 126 milljónir dollara (15,6 milljarða króna) á fyrstu sex mánuðum ársins 2019 og fer eiginfjárhlutfall nú í fyrsta skipti í sögu fyrirtækisins yfir 50%. Rekstrartekjur lækka um 4% en til móts hefur rekstrar- og viðhaldskostnaður ásamt vaxtagjöldum lækkað umtalsvert og handbært fé frá rekstri aukist um 7% milli ára. Vegna aðstæðna á alþjóðlegum hrávörumörkuðum er staða stærstu viðskiptavina krefjandi um þessar mundir.“

Viðhengi