2017-02-08 19:21:18 CET

2017-02-08 19:21:18 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Marel hf. - Boðun hluthafafundar

Aðalfundur Marel hf. 2017


                            Aðalfundur Marel hf. 2017



Aðalfundur Marel hf. verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Austurhrauni 9,
210 Garðabæ, fimmtudaginn 2. mars nk., kl. 16:00. 



Dagskrá:

  -- Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt grein 4.13 í samþykktum félagsins.
  -- Skýrsla um framkvæmd starfskjarastefnu.
  -- Tillaga um kaupréttarkerfi.
  -- Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf.
  -- Önnur mál, löglega borin fram.



Fundarstörf munu fara fram á ensku.



Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn
skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm
sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar, þ.e. fyrir kl. 16:00 laugardaginn 25.
febrúar. 



Til þess að tillögur frá hluthöfum sem leggja á fyrir á fundinum verði teknar
þar til umræðu verður að skila þeim til stjórnar félagsins eigi síðar en tíu
dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16:00 mánudaginn 20. febrúar. 



Á aðalfundarvef félagsins (www.marel.com/agm) er að finna allar frekari
upplýsingar í tengslum við aðal­fundinn, þ.m.t. frekari upplýsingar um rétt
hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og leggja fram
ályktunartillögur fyrir fundinn, drög að dagskrá fundarins, tillögur stjórnar
félagsins, ársreikning félagsins fyrir árið 2016, upplýsingar um heildarfjölda
hluta og atkvæðafjölda í félaginu m.v. 8. febrúar 2017, umboðsform auk
upplýsinga um skjöl sem lögð verða fyrir fundinn. 



Endanleg dagskrá fundarins og tillögur verða gerðar aðgengilegar hluthöfum sjö
dögum fyrir fundinn á framangreindum aðalfundarvef félagsins sem og á
skrifstofu félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ. 



Umboðsmenn hluthafa skulu framvísa skriflegum umboðum við inngang.
Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða aðgengileg á fundarstað frá kl. 15:30. 



Stjórn Marel hf.