|
|||
2009-03-30 12:07:58 CEST 2009-03-30 12:08:59 CEST REGULATED INFORMATION Icebank - FyrirtækjafréttirFjármálaeftirlitið skipar skilanefnd fyrir Sparisjóðabanka Íslands hf.Fjármálaeftirlitið (FME) hefur skipað skilanefnd fyrir Sparisjóðabanka Íslands hf., samanber ákvörðun Fjármálaeftirlitsins þar að lútandi dags. 27. mars sl. Í skilanefndina hafa verið skipaðir: Þorvarður Gunnarsson, löggiltur endurskoðandi, formaður, Erling Tómasson, löggiltur endurskoðandi, Hjördís Edda Harðardóttir, hæstaréttarlögmaður, Jón Ármann Guðjónsson, héraðsdómslögmaður og Áslaug Björgvinsdóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Líkt og tilkynnt var 23. mars sl. er Sparisjóðabankinn í greiðlustöðvun og er rétt að árétta að skipan skilanefndar fyrir bankann hefur ekki áhrif á þá stöðu bankans. Ákvarðanir FME varðandi Sparisjóðabankann má nálgast á heimasíðu FME: http://www.fme.is/?PageID=866 |
|||
|