2022-08-18 17:56:13 CEST

2022-08-18 17:56:13 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Eimskipafélag Íslands hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Eimskip: Tilkynning um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar


Á aðalfundi Eimskips þann 17. mars 2022 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir hönd félagsins. Heimildin skyldi m.a. nýtt í þeim tilgangi að koma á formlegri endurkaupaáætlun með það að markmiði að lækka útgefið hlutafé félagsins.

Stjórn Eimskips hefur í dag á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins.

Heimild er til að kaupa hlutabréf í félaginu í 18 mánuði frá aðalfundinum með þeim fyrirvara að félagið ásamt dótturfélögum þess megi einungis eiga mest 10% hlutafjár þess. Endurkaupin munu að hámarki nema 1.700.000 hlutum eða um 1,0% af útgefnum hlutum í félaginu, á kaupverði sem má þó ekki fara yfir kr. 1.000.000.000,- að markaðsvirði.

Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en verð í síðustu óháðu viðskiptum eða jafnt hæsta fyrirliggjandi kauptilboði í Kauphöll Nasdaq Ísland. Hámarksmagn hvers viðskiptadags er fjórðungur af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins á aðalmarkaði í júlí 2022. Hámarksfjöldi leyfilegra hluta á hverjum viðskiptadegi verður því 68.960 frá og með 22. ágúst 2022.

Endurkaupaáætlunin verður framkvæmd af Arion banka hf. sem tekur allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna, óháð félaginu. Arion banki hefur samkvæmt samningi aðila heimild til að hefja endurkaup þann 22. ágúst nk. og mun áætlunin vera í gildi fram til 17. september 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Í dag á Eimskip 1.761.307 hluti að nafnverði í félaginu sem nemur 1,02% af heildarhlutafé félagsins.

Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs í síma 825-3399 eða á investors@eimskip.is.