2021-12-03 11:26:46 CET

2021-12-03 11:26:46 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Útboð sértryggðra skuldabréfa


Landsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 7. desember kl. 15:00. Boðinn verður til sölu einn óverðtryggður flokkur, LBANK CB 25.

Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur verðtryggða flokksins LBANK CBI 22 eiga þess kost að selja bréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Verð skuldabréfanna er fyrirframákveðið og er 101,792.

Áætlaður uppgjörsdagur er 14. desember 2021.

Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A- með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is.