|
|||
2012-05-22 18:09:04 CEST 2012-05-22 18:10:05 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirAðgerðir Lánamála ríkisins í gjaldeyrisútboði Seðlabanka Íslands 20. júní 2012Í tilkynningu Lánamála ríkisins þann 28. mars 2011 kom fram að kaupendur gjaldeyris í væntanlegum útboðum Seðlabanka Íslands geta selt ríkissjóði ríkisvíxla og ríkisbréf með gjalddaga fyrir árslok 2013 til fjármögnunar á gjaldeyriskaupum. Gjaldeyrisviðskiptin munu fara fram með milligöngu viðskiptavaka á gjaldeyrismarkaði sem eru Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn. Seðlabanki Íslands hefur tilkynnt að næsta gjaldeyrisútboð verði haldið 20. júní næstkomandi. Aðilar sem eiga samþykkt tilboð í gjaldeyrisútboði Seðlabankans eiga þess kost að selja Lánamálum eftirfarandi ríkisverðbréf miðað við uppgjör 22. júní 2012. Kaupverð á ríkisverðbréfunum verður tilkynnt eftir kl. 16.00 þann 14. júní 2012. Flokkar ------------ RIKV 12 0716 ------------ RIKV 12 0815 ------------ RIKV 12 0917 ------------ RIKV 12 1015 ------------ RIKV 12 1115 ------------ RIKV 12 1217 ------------ RIKB 12 0824 ------------ RIKB 13 0517 ------------ Viðskiptavakar sem ætla að hafa milligöngu um gjaldeyrisviðskipti með framangreindum ríkisskuldabréfum þurfa að upplýsa Lánamál ríkisins um það eigi síðar en kl. 09.00 þann 21. júní. Ríkisverðbréfin þurfa svo að berast Lánamálum fyrir klukkan 11.00 þann 22. júní. Greiðslur eiga sér stað eftir afhendingu bréfanna og eigi síðar en klukkan 16.00 sama dag. Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9633. |
|||
|