2008-03-05 10:59:54 CET

2008-03-05 11:00:54 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Hf. Eimskipafélag Íslands - Árshlutareikningar

Birting 3 mánaða uppgjörs þann 13. mars 2008


Hf. Eimskipafélag Íslands birtir uppgjör fyrstu þriggja mánaða 2008, sem lauk
31. janúar 2008, þann 13. mars eftir lokun markaða. Kynningarfundur fyrir
hluthafa og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn, 14. mars, í húsakynnum
Eimskips, Sundakletti, að Korngörðum 2. Kynning á uppgjörinu hefst stundvíslega
kl. 08:30 og boðið verður upp á morgunverð. Stefán Ágúst Magnússon, forstjóri
Eimskips, kynnir afkomu félagsins og svarar spurningum. 

Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á
heimasíðu Hf. Eimskipafélags Íslands www.eimskip.is. Vinsamlega hafið samband
við Halldór Kristmannsson, framkvæmdastjóra samskiptasviðs, í síma 840 3425 eða
Dögg Hjaltalín, forstöðumanns fjárfestatengsla, í síma 825 7225, fyrir nánari
upplýsingar.