2015-10-28 16:04:08 CET

2015-10-28 16:05:12 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Seðlabanki Íslands hefur lokið mati sínu á fyrirliggjandi drögum að nauðasamningum


Sem kunnugt er hafa slitastjórnir þriggja stærstu föllnu viðskiptabankanna,
Kaupþings hf., Glitnis hf. og LBI hf. óskað eftir því við Seðlabanka Íslands að
þeim verði veittar undanþágur frá lögum um gjaldeyrismál, vegna fyrirhugaðra
nauðasamninga við kröfuhafa sína og loka slitameðferðar félaganna, sbr. 103.
gr. a. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. Samkvæmt áskilnaði 7. gr. laga
um gjaldeyrismál er aðeins unnt að veita undanþágu frá takmörkunum laganna ef
tryggt er að stöðugleika í gengis- og peningamálum og fjármálalegum stöðugleika
verði ekki raskað vegna slita þeirra. Forsenda þess að uppgjör fallinna
viðskiptabanka og sparisjóða valdi ekki óstöðugleika er að gripið verði til
ráðstafana til mótvægis þeim neikvæðu áhrifum sem stafa af útgreiðslum
innlendra eigna til erlendra kröfuhafa. Seðlabankinn hefur nú lokið mati sínu á
fyrirliggjandi drögum að nauðasamningum. Það er mat bankans að drögin uppfylli
kröfur laga um gjaldeyrismál um að efndir nauðasamninganna ásamt fyrirhuguðum
mótvægisráðstöfunum leiði hvorki til óstöðugleika í gengis- og peningamálum né
raski fjármálastöðugleika. Samráð skv. 13.gr. c laga um gjaldeyrismál hefur
farið fram og hefur ráðherra kynnt niðurstöðuna fyrir efnahags- og
viðskiptanefnd. Nánar er fjallað um mat Seðlabankans í greinargerð sem hefur
verið birt á vef bankans. 


Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569 9600.