|
|||
![]() |
|||
2016-08-11 18:14:13 CEST 2016-08-11 18:14:13 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumNýr framkvæmdastjóri rekstrarsviðs ÍbúðalánasjóðsRut Hreinsdóttir, Msc. Endurskoðun og reikningsskil, hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Íbúðalánasjóðs. Rut er með meistaragráðu í endurskoðun og reikningsskilum frá Háskólanum í Reykjavík og með Bs gráðu í viðskipta- og hagfræði frá Handelshöjskolen í Heming (Aarhus, DK). Rut hefur áralanga reynslu af rekstri og fjármálum og hefur starfað sem fjármálastjóri hjá Hlaðbæ-Colas, Tali, Lífeyrissjóði verkfræðinga og nú síðast hjá Hringrás. Rut er gift Guðmundi Bjarna Harðarsyni, framkvæmdastjóra og eiga þau saman tvær dætur. Rut mun hefja störf hjá Íbúðalánasjóði á næstu vikum. |
|||
|