|
|||
2009-05-08 13:29:16 CEST 2009-05-08 13:30:25 CEST REGULATED INFORMATION Landsafl hf. - Fyrirtækjafréttir- Tilkynning frá Landsafli ehf. um fjárhagsstöðu félagsinsÞann 29. apríl s.l. tilkynnti Landsafl ehf. að félagið myndi ekki birta ársuppgjör sitt fyrir síðasta rekstrarár í lok apríl 2009. Landsafl ehf. vill þó upplýsa markaðinn um eftirfarandi þætti varðandi stöðu félagsins. Fyrir liggur að eigið fé félagsins er neikvætt samkvæmt drögum af óendurskoðuðu uppgjöri ársins 2008. Helsta ástæða þessa er að fjármögnun félagsins er að stærstum hluta í erlendum gjaldmiðlum og hefur veiking íslensku krónunnar haft neikvæð áhrif á eigið fé félagsins. Unnið er að fjárhagslegri endurskipulagningu á félaginu með það að markmiði að endurreisa eiginfjárstöðu þess. Jafnframt ber að geta þess að skuldabréfaflokkurinn sem Landsafl hefur gefið út, LAFL 03 1, er tryggður með veði í fasteign og jafnframt eru leigugreiðslur af fasteigninni settar að veði til tryggingar á greiðslu skuldabréfanna. Um er að ræða langtíma leigusamning við Fasteignir ríkissjóðs. Þess ber að geta að áðurnefndur skuldabréfaflokkur er í skilum. Frekari upplýsingar veitir: Viðar Þorkelsson, forstjóri Landic Property hf. og stjórnarformaður Landsafls ehf. Sími 575 9000 |
|||
|