|
|||
![]() |
|||
2016-10-18 01:15:25 CEST 2016-10-18 01:15:25 CEST REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - FyrirtækjafréttirIcelandair Group gefur út skuldabréf að fjárhæð 150 milljónir USDIcelandair Group seldi í dag óveðtryggð skuldabréf að fjárhæð 150 milljónir bandaríkjadollara til fjárfesta. Skuldabréfin eru til fimm ára og bera 3,5% vexti, ofan á þriggja mánaða LIBOR-vexti, án vaxtagólfs. Fjármagnið verður nýtt til fyrirframgreiðslna inn á nýjar flugvélar og í fjármögnun annarrar starfsemi Icelandair Group. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group: „Þetta er fyrsta skuldabréfaútgáfa félagsins á erlendum markaði og við erum einnig eitt fyrsta íslenska fyrirtækið, fyrir utan fjármálastofnanir, sem gefur út skuldabréf á erlendum markaði í mörg ár. Niðurstaðan er mjög ánægjuleg, ekki síst í ljósi þess að kjör í skuldabréfaútgáfunni eru þau bestu sem norrænu flugfélagi bjóðast á óveðtryggðum skuldabréfum. Jafnframt eru kjörin hagstæð ef litið er til margra alþjóðlegra flugfélaga sem við berum okkur saman við.“ Pareto Securities AB hafði umsjón með skuldabréfaútgáfunni. Frekari upplýsingar: Bogi Nils Bogason Framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group Netfang: bogi@icelandairgroup.is Sími: 665 88 01 |
|||
|