2018-11-14 17:49:55 CET

2018-11-14 17:49:55 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki lýkur víxlaútboði


Arion banki hf. lauk í dag, miðvikudag, útboði á víxlum til sex og fimm mánaða.  Í heild bárust 13 tilboð upp á 2.340 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.640 milljónir kr.

Í heild bárust 3 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 300 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,79% - 4,95%.  Engum tilboðum var tekið í 5 mánaða víxilinn.

Í heild bárust 10 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 2.040 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,75% - 4,95%.  Samþykkt voru tilboð að nafnverði 1.640 milljónir á 4,85% flötum vöxtum.

Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 20. nóvember næstkomandi. 

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka haraldur.eidsson@arionbanki.is s: 856-7108.