|
|||
![]() |
|||
2011-05-06 13:46:25 CEST 2011-05-06 13:47:25 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 12 0824 OG RIKB 16 1013Útboð á óverðtryggðum flokkum ríkisbréfa, RIKB 12 0824 og RIKB 16 1013 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 12 0824: Alls bárust 6 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.600 m.kr. að nafnverði. 3 tilboðum var tekið fyrir 700 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,25 (3,23% ávöxtunarkröfu). RIKB 16 1013: Alls bárust 6 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 835 m.kr. að nafnverði. 5 tilboðum var tekið fyrir 785 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 102,05 (5,54% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 10. maí. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 11. maí 2011. |
|||
|