2017-04-05 16:47:38 CEST

2017-04-05 16:47:38 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Ríkissjóður kaupir eigin skuldabréf að nafnvirði 876,9 milljónir Bandaríkjadala


Ríkissjóður hefur keypt til baka eigin skuldabréf að nafnvirði 876,9 milljónir Bandaríkjadala í skuldabréfaflokknum “ICELAND 5.875%“ sem eru á gjalddaga 2022,  (Reg S ISIN USX34650AA31 and 144A ISIN US451029AE22; Reg S CUSIP X34650AA3 and 144A CUSIP 451029AE2) á verðinu 115,349. Þann 29. mars bauðst ríkissjóður til að kaupa alla útistandandi fjárhæð eigin skuldabréfa sem gefin voru út árið 2012 og voru á gjalddaga í maí 2022. Stóð útboðið til 4. apríl. Heildarnafnverð útgáfunnar nam 1.000 milljónum Bandaríkjadala. Uppkaupin eru liður í lausafjár- og skuldastýringu ríkissjóðs. Við aðgerðina minnkar gjaldeyrisforði Seðlabankans um samsvarandi fjárhæð, en ríkissjóður greiddi fyrir bréfin með erlendum innstæðum í SÍ.

Nánari upplýsingar gefur Esther Finnbogadóttir, fjármála- og efnahagsráðuneyti í síma 545-9200.