2014-02-25 23:45:00 CET

2014-02-25 23:45:02 CET


REGULATED INFORMATION

This message has been corrected. Click here to view the corrected message

English Islandic
HS Orka hf. - Ársreikningur

HS Orka hf leggur fram ársreikning 2013


Stjórn HS Orku hf samþykkti á fundi sínum í dag ársreikning fyrirtækisins fyrir
reikningsskilaárið 2013. Ársreikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega
reikningsskilastaðla, IFRS og er í íslenskum krónum. Ársreikninginn má finna á
vefsíðu fyrirtækisins http://www.hsorka.is 

Helstu atriði ársreikningsins eru þessi:

  -- Rekstartekjur fyrirtækisins námu 7.031 milljónum á rekstarárinu 2013,
     samanborið 6.881 m.kr. árið 2012. Tap ársins af reglulegri starfsemi nemur
     355 m.kr. samanborið við 653 m.kr hagnað árið 2012. Heildar tap er 434
     m.kr, samanborið við 5.509 m.kr hagnað. árið 2012.
  --  EBITDA er alls um 2.603 m.kr. 2013 en var 2.923 m.kr. á sama tímabili
     2012.

  -- Eiginfjárhlutfall 31. desember 2013 er mjög sterkt eða 58,0% samanborið við
     53,4% í árslok 2012.
  -- Reiknaðir fjármagnsliðir hafa afgerandi áhrif á afkomu fyrirtækisins nú
     eins og oft áður.  Þar vegur þyngst breyting á virði afleiða
     (framtíðarvirði orkusölusamninga sem tengjast álverði) sem er neikvætt
     4.138 m.kr. en var neikvætt um 201 m.kr. á árinu 2012.  Á móti vegur 1.602
     m.kr. gengishagnaður á árinu 2013, á árinu 2012 var hins vegar gengistap
     782 milljónir
  -- EBITDA er áfram góð og tekjur hækka um 2% eða um 150 m.kr. og námu 7.031
     m.kr., en voru 6.881  m.kr. fyrir árið 2012. Að móti hækkar
     rekstrarkostnaður um 17% eða sem nemur 787 m.kr. milli sömu tímabila.
     Nokkrar ástæður eru fyrir þessari aukningu tekna. Munar þar mest um aukna
     sölu á smásölumarkaði en lækkandi álverð dregur svo verulega úr
     tekjuaukningunni á móti. Á kostnaðarhliðinni hafa orkukaup aukist nokkuð og
     flutningskostnaður hækkað vegna breytinga á gjaldskrá Landsnets. Ráðist var
     í viðhaldsboranir á tveimur holum á tímabilinu en engar slíkar boranir voru
     á sama tímabili í fyrra. Þá hefur skrifstofu- og stjórnunarkostnaður
     hækkað, fyrst og fremst vegna kostnaðar við gerðardómsmál vegna
     orkusölusamnings við Norðurál á Grundartanga.


Frekari upplýsingar veitir Ásgeir Margeirsson, f
orstjóri HS Orku hf, í síma 855 9301.