|
|||
![]() |
|||
2007-12-19 11:55:47 CET 2008-01-10 16:51:31 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Hf. Eimskipafélag Íslands - FyrirtækjafréttirÁkvörðun SamkeppniseftirlitsinsSamkeppniseftirlitið birti í dag úrskurð sinn í máli sínu gegn Hf. Eimskipafélagi Íslands sem hófst árið 2002. Félagið telur meðferð Samkeppniseftirlitsins hafa dregist úr hömlu. Eimskip telur málinu ranglega beint að félaginu enda hafi nýtt félag komið að sjórekstrarþætti félagsins og önnur félög hafa yfirtekið réttindi þess og skyldur. Eimskip hefur þegar tekið ákvörðun um að áfrýja málinu til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og mun því endanleg niðurstaða í málinu ekki liggja fyrir fyrr en á síðari stigum. Sektir voru ákveðnar í málinu kr. 310 milljónir. |
|||
|