|
|||
2017-07-12 19:43:35 CEST 2017-07-12 19:43:35 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarArion banki lýkur víxlaútboðiArion banki hf. lauk í dag, miðvikudag, útboði á víxlum til átján, tólf, sex og fimm mánaða. Í heild bárust 27 tilboð upp á 3.760 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.340 milljónir kr. Í heild bárust 5 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 700 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,65% - 4,80%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 220 milljónir á 4,65% flötum vöxtum. Í heild bárust 15 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.760 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,59% - 4,90%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 660 milljónir á 4,68% flötum vöxtum. Í heild bárust 6 tilboð í 12 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.260 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,77% - 5,00%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 460 milljónir á 4,85% flötum vöxtum. Eitt tilboð barst í 18 mánaða víxilinn að fjárhæð 40 milljónir kr. á 5,22% flötum vöxtum. Því tilboði var hafnað að þessu sinni. Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 20 júlí. Nánari upplýsingar veitir Kristín Erla Jónsdóttir, fjármögnun Arion banka, kristin.erla.jonsdottir@arionbanki.is, s: 444 6272. |
|||
|