2011-12-08 16:30:17 CET

2011-12-08 16:31:20 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð ríkisvíxla RIKV 12 0315 OG RIKV 12 0615


Þriðjudaginn 13. desember kl: 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 12 0315 og RIKV 12 0615 sem eru með gjalddaga 15.
mars og 15. júní 2012. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að
gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er fimmtudagur 15. desember 2011.

Sótt verður um að RIKV 12 0615 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ OMX á
Íslandi föstudaginn 16. desember 2011. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569
9633.