|
|||
2015-11-17 17:24:28 CET 2015-11-17 17:25:29 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. lýkur sölu sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag lokuðu útboði á LBANK CBI 22, verðtryggðum flokki sértryggðra skuldabréfa sem skráður er á Nasdaq Iceland. Alls bárust tilboð að fjárhæð 980 m. kr. í útboðinu og var tilboðum tekið fyrir 900 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,00%. Áður hefur Landsbankinn gefið út 8.680 m. kr. í sama flokki og nemur heildarstærð flokksins því 9.580 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 24. nóvember 2015 en Kvika sinnir viðskiptavakt með skuldabréf flokksins. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. |
|||
|